Fréttastofa RÚV
Stríðið í Mið-Austurlöndum gæti steypt rúmlega 30 milljónum í fátækt. Mest verða áhrifin í Afríku sunnan Sahara sem og í Asíu. Þetta sagði Alexander De Croo, yfirmaður Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna, við AFP-fréttaveituna í París í dag. Stofnunin gerði rannsókn þegar sex vikur voru liðnar af stríðinu og áætlar að jafnvel þótt því lyki þá yrði 32 milljónum manna steypt út í fjárhagslega óvissu í 160 löndum. De Croo segir þetta öfuga þróun. „Það tók áratugi að byggja upp stöðug samfélög, staðbundin hagkerfi og það tók aðeins nokkrar vikur að eyðileggja það.“ Hormússund hefur nánast verið alveg lokað síðan stríðið hófst og olíuverð hefur rokið upp vegna þessa. Um fimmtungur allrar olíu og jarðgass í heiminum fer um sundið. Verðhækkun og vöruskortur hafa leitt til þess að lönd í Afríku og Asíu hafa gripið til ýmissa aðgerða, eins og skömmtunar eldsneytis og styttingu vinnuvikunnar, til að draga úr neyslu. Önnur lönd hafa lækkað eldsneytisgjöld til að draga úr áhrifum stríðsins á neytendur. Stofnunin telur stríðið eiga eftir að hafa djúpstæð áhrif á lönd sunnan Sahara-eyðimerkurinnar í Afríku og lönd eins og Bangladess og Kambódíu í Asíu. Áhrifin eigi einnig eftir að vera mikil á eyríki. De Croo sagði háan orkukostnað og skort á áburði eiga eftir að hafa gríðarleg áhrif á fólk í þessum löndum á næstu mánuðum. Pólitískur óstöðugleiki geti aukist. Til þess að forðast fátækt áætlar stofnunin að um sex milljarða Bandaríkjadali þurfi fjárstuðning fyrir þá sem viðkvæmastir eru fyrir háu matar- og orkuverði, að sögn De Croo.
Go to News Site