Fréttastofa RÚV
Íslenski glæpasagnahöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir hefur tekið höndum saman við franskan kollega sinn, Jérôme Loubry, og skrifað bókina Myrkravald að undirlagi glæpasagnahátíðarinnar Quais du polar í Lyon. Bæði eru þau margverðlaunuð fyrir glæpasögur sínar en gagnrýnendur Kiljunnar á RÚV voru efins um útkomuna. „Yfirleitt er það þannig með svona samkrull höfunda, og það verður bara að segjast eins og er, það tekst yfirleitt ekkert óskaplega vel,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir. „Það á eiginlega við hér.“ Sagt er frá Veru sem getur átt von á að verða næsti borgarstjóri í Reykjavík þegar hún fær skilaboð frá franskri blaðakonu sem neyðir hana til að horfast í augu við örlagaríka atburði sem áttu sér stað fyrir nærri tveimur áratugum. „Þessi blaðakona hnígur niður í sendiráði hér í borg og franskur lögreglumaður er sendur í eins konar útlegð til Reykjavíkur og fer að kanna málið. Þetta er í stuttu máli þráðurinn.“ „Þetta er ekki löng bók og gallinn er sá að maður er nú mjög fljótlega búinn að átta sig á því um hvað fléttan snýst,“ heldur Kolbrún áfram. „Svo eru persónurnar ekki mjög spennandi.“ „Maður er fljótur að lesa þetta, þetta skilur ekkert eftir og er bara ekki nógu gott.“ Mikil kúnst að skapa ráðgátu í svo knöppu formi Þorgeir Tryggvason er sammála kollega sínum. „Ég held líka að til þess að tveir höfundar geti breitt úr vængjum sínum þá þurfi bara fleiri blaðsíður.“ Það hafi þurft að leiða hlutina hratt til lykta sem geri það að verkum að ekki hafi verið hægt að fela fléttuna auðveldlega að mati Þorgeirs. „Þetta er bara mikil kúnst, held ég, að ná að búa til ráðgátu í svona knöppu formi. Hvað þá að búa til persónur sem hafa einhverja stærð.“ „Það er auðvitað nánast fyrir fram ljóst að það tekst ekki – en ég meina, þetta er alveg skemmtilegt.“ Kolbrún tekur undir og segir bókina fína. „Eva Björg er það hæfileikamikil, og kannski er ég grimm, en mér finnst bara að hún eigi að gera betur.“ Bókin sé ákveðið hliðarspor sem hún þó fyrirgefur. „Eva Björg er það hæfileikamikil, og kannski er ég grimm, en mér finnst bara að hún eigi að gera betur,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi um Myrkravald sem Eva Björg skrifaði með Jérôme Loubry. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um Myrkravald eftir Evu Björgu Ægisdóttur og Jérôme Loubry. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.
Go to News Site