Collector
Hvern ætli þessi framhaldsskólanemi kjósi? | Collector
Hvern ætli þessi framhaldsskólanemi kjósi?
Fréttastofa RÚV

Hvern ætli þessi framhaldsskólanemi kjósi?

Skuggakosningar eru kosningar þar sem framhaldsskólanemar, sem ekki hafa náð kosningaaldri, kjósa sinn fulltrúa í sveitarstjórn. Magnhildur Klara, 17 ára nemandi við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ, segist ekki ræða stjórnmál mikið við vini sína. Hún fær þó oft upp pólitískt efni á samfélagsmiðlum, þá helst frá Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Henni finnst merki Samfylkingarinnar, rauða rósin, mest heillandi. Niðurstöður í skuggakosningum verða ekki gerðar opinberar fyrr en öllum kjörstöðum hefur verið lokað á kjördag sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí.

Go to News Site