Collector
Íslandsmetin féllu í skemmtilegu götumíluhlaupi | Collector
Íslandsmetin féllu í skemmtilegu götumíluhlaupi
Fréttastofa RÚV

Íslandsmetin féllu í skemmtilegu götumíluhlaupi

Vecct götumílan var haldin á kvartmílubrautinni í Hafnarfirði í gærkvöld, en míla er 1609 metrar og er stysta götuhlaupið sem er viðurkennt í afrekaskrám frjálsíþrótta. Margir bestu hlauparar landsins voru mættir til leiks, en vindurinn var mikill. Í elítuflokki kvenna tók Andrea Kolbeinsdóttir strax forystuna og hélt henni til enda. Andrea bar sigur úr býtum og kom í mark á 4:59 mínútum, tólf sekúndum á undan næstu konu. Í elítuflokki karla var Baldvin Þór Magnússon mættur til leiks en spurningin var hvort hann gæti hlaupið götumíluna undir fjórum mínútum við þessar aðstæður. Baldvin tók þó á rás í byrjun og gaf allt í hlaupið þó blési duglega. Hann vann örugglega og þar með Íslandsmetið, en sigurtími hans var 4:21 mínúta. Hann var tíu sekúndum á undan næsta manni.

Go to News Site