Collector
Breiðablik með fullt hús og Stjarnan vann Val | Collector
Breiðablik með fullt hús og Stjarnan vann Val
Fréttastofa RÚV

Breiðablik með fullt hús og Stjarnan vann Val

Líf Joostdóttir van Bemmel skoraði fyrir Blika í kvöld.RÚV / Mummi Lú Breiðablik hefur titilvörn sína vel í Bestu deild kvenna í fótbolta. Blikar unnu í kvöld 2-0 sigur á Fram í 2. umferð deildarinnar og hafa fullt hús stiga eða sex talsins. Líf Joostdóttir van Bemmel kom Breiðabliki yfir á 57. mínútu og Barbára Sól Gísladóttir bætti öðru marki við tíu mínútum síðar. Stjarnan sótti svo sín fyrstu stig á leiktíðinni með 2-0 sigri á Val. Birna Jóhannsdóttir skoraði fyrra mark Garðbæinga á 61. mínútu og Jana Sól Valdimarsdóttir innsiglaði svo sigurinn á 90. mínútu. Valur vann Grindavík/Njarðvík í 1. umferð og því hafa bæði Stjarnan og Valur sín þrjú stigin hvort lið í deildinni.

Go to News Site