Fréttastofa RÚV
Verð á tunnu af Brent-Norðursjávarolíu til afhendingar í júní er 125 bandaríkjadalir og hefur hækkað hratt. Olíuverð hefur hækkað verulega það sem af er þessu ári.EFE FILES / EPA Olíuverð hefur ekki verið hærra frá því Ísrael og Bandaríkin hófu stríð gegn Íran. Norska ríkisútvarpið segir olíuverð hafa hækkað um 86,5 af hundraði, úr um 60 dölum fyrir tunnuna, það sem af er ári. Vefritið Axios hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum að Brad Cooper, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, muni upplýsa Donald Trump forseta um nýja hernaðaráætlun gegn Íran síðar í dag. Trump staðhæfði í gær að herkví um íranskar hafnir hefði þyngri afleiðingar en loftárásir og að óbeinar samningaviðræður stæðu yfir.
Go to News Site