Fréttastofa RÚV
Freyr Alexandersson stýrði liði sínu Brann til stórsigurs gegn toppliði norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gærkvöld. Kristall Máni Ingason skoraði þrennu í leiknum sem Brann vann 5-0. Brann fór í heimsókn til Tromsø sem hafði ekki tapað leik á tímabilinu fram til þessa. Kristall Máni Ingason mætti hins vegar á skotskónum í gærkvöld og skoraði þrennu á tæpum tuttugu mínútum. Fyrsta markið kom á 19. mínútu, það næsta þremur mínútum síðar og það síðasta á 37. mínútu. Mörkin þýddu að Brann leiddi 3-0 í hálfleik en bætti svo tveimur mörkum til viðbótar við í seinni hálfleik til að innsigla 5-0 sigur. Í viðtali við NRK eftir leikinn sagðist Freyr vera afar stoltur af leikmönnunum sínum og var ekki síður ánægður með Kristal. „Fólk vanmetur hversu góður hann er af því að hann er með svo skrítna klippingu, lítur út eins og rappstjarna, en hann er með mikla fótboltagreind.“ Um var að ræða fyrstu mörk Kristals fyrir félagið en hann gekk til liðs við Brann í byrjun árs. Hann er ekki eini íslenski leikmaðurinn sem Freyr er með á sínum snærum en landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliðinu í gær og Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson eru að ná sér eftir meiðsli. Sigurinn er afar mikilvægur fyrir Brann sem byrjaði tímabilið brösuglega en er nú í 7. sæti með sjö stig eftir sjö leiki.
Go to News Site