Fréttastofa RÚV
Allyson Felix er margfaldur heims- og ólympíumeistari í hinum ýmsu spretthlaupum. Hún lagði gaddaskóna á hilluna 2022 en ætlar nú að reyna að ná keppnisrétti á Ólympíuleikunum 2028. Felix er fædd og uppalin í Los Angeles og það var tilhugsunin um Ólympíuleika á heimavelli sem kallaði á hana. „Þegar ég var að keppa heyrði maður alltaf þessi þvílíku fagnaðarlæti fyrir íþróttafólkið sem var á heimavelli á Ólympíuleikunum. Ég myndi elska að fá að upplifa það.“ Ótrúlegur verðlaunaferill Felix vann til verðlauna á fimm Ólympíuleikum í röð, fyrst í Aþenu 2004 og síðast í Tókýó 2021. Hún varð sjö sinnum ólympíumeistari, sex sinnum í boðhlaupi en einu einstaklingsgullverðlaun hennar komu í 200 metra hlaupinu í London 2012. Hún á verðlaun úr 200 metra hlaupum og 400 metra hlaupum, auk boðhlaupanna, en auk ólympíuverðlaunanna varð Felix 14 sinnum heimsmeistari og tíu sinnum bandarískur meistari. Engin kona og enginn Bandaríkjamaður hefur fengið fleiri ólympíuverðlaun í frjálsíþróttum og enginn hefur fengið jafn mörg verðlaun á heimsmeistaramóti. Sé þetta allt talið saman er Felix sá frjálsíþróttakeppandi sem á flest verðlaun í sögunni. Horfði til Tom Brady, LeBron James og Lindsey Vonn Þegar Ólympíuleikarnir verða settir í Los Angeles 2028 verður Felix næstum því orðin 43 ára gömul. Í viðtali við Times segir hún að hún hafi fengið innblástur frá ofurstjörnum íþróttanna sem hafa haldið áfram íþróttaiðkun fram yfir fertugt og nefnir sem dæmi NFL-leikmanninn Tom Brady, skíðakonuna Lindsey Vonn og körfuboltamanninn LeBron James, sem er enn að. Það verður þó ekki sjálfgefið fyrir Felix að komast inn á leikana. Keppnin um ólympíusæti Bandaríkjanna er alltaf gríðarlega hörð en Felix segist ekkert þurfa að sanna. Hún vilji miklu frekar komast að því hversu langt hún geti komist á þessum aldri. „Heimurinn segir konum að eftir fertugt eigum við að hægja á okkur, vera minni, þögulli, sáttar,“ segir Felix meðal annars í tilkynningu á samfélagsmiðlum sínum. „Þetta er ógnvekjandi, þetta er spennandi. Ég hef aldrei verið jafn berskjölduð og ég veit ekkert hvernig þetta endar.“ Leyfir fólki að fylgjast með ferlinu Felix heldur tryggð við þjálfara sinn til margra ára, Bobby Kersee, og planið er að hefja æfingar á fullu í október. Stefnan er sett á að snúa aftur á keppnisbrautina á næsta ári en hún reiknar ekki með að keppa á öllum mótum sem í boði verða. Felix hefur sett á laggirnar heimasíðu, moreinus.com , þar sem hún ætlar að leyfa fólki að fylgjast með ferlinu. Felix hefur lengi barist fyrir réttindum kvenna í íþróttum og opinber barátta hennar við Nike vegna meðgöngu hennar árið 2019 varð til að mynda til þess að Nike og fleiri stórfyrirtæki breyttu fæðingarorlofsstefnu sinni. Hún virðist afar meðvituð um að endurkoman gæti misheppnast og að henni mistakist að komast inn á leikana. Það sé hins vegar tilgangurinn með þessu öllu saman.
Go to News Site