Fréttastofa RÚV
Bandaríkin hyggjast setja á laggirnar alþjóðlegt bandalag sem miðar að því að koma umferð skipa um Hormússund af stað að nýju. Siglingaleiðin um Hormússund, sem er afar mikilvæg fyrir olíuflutninga, er enn að mestu leyti lokuð vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Samkvæmt embættismanni utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna nefnist bandalagið „Siglingafrelsisbandalagið“ ( e. Marine Freedom Construct). Hann sagði bandalaginu ætlað að gera ráðstafanir til að tryggja örugga för skipa, meðal annars með því að veita upplýsingar í rauntíma, leiðbeiningar og stuðla að samhæfingu aðgerða til að tryggja öryggi skipa sem sigla um sundið. Embættismaðurinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið, svaraði í dag fyrirspurnum AFP-fréttaveitunnar um minnisblað Bandaríkjastjórnar þar sem bandarísk sendiráð eru hvött til að þrýsta á önnur ríki að taka þátt í bandalaginu. Í umfjöllun bandaríska fjölmiðilsins Wall Street Journal segir að bandalagið sé sameiginlegt verkefni bandaríska utanríkisráðuneytisins og US Central Command (CENTCOM), sem hefur yfirumsjón með bandarískum herafla í Mið-Austurlöndum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gagnrýnt bandalagsríki NATO fyrir að taka ekki virkari þátt í átökum Bandaríkjanna og Ísraels við Íran. Hann hefur sömuleiðis hvatt olíuríki til þess að þrýsta á opnun sundsins. Bretland og Frakkland hafa einnig leitt viðræður sem snúa að sambærilegu framtaki á sviði siglingaöryggis og héldu ríkin nýverið fund með fulltrúum rúmlega 50 ríkja um mögulegt samstarf.
Go to News Site