Fréttastofa RÚV
Alþjóðleg dómnefnd Feneyjatvíæringsins í myndlist hefur sagt af sér. Í stuttri yfirlýsingu sem hún birti á eFlux segir að með afsögn sinni standi dómnefndin með fyrri yfirlýsingu sinni sem dómnefndin sendi frá sér í síðustu viku. Í henni greindi dómnefndin frá því að í störfum sínum myndi hún ekki taka til greina þjóðarskála ríkja hverra þjóðarleiðtogar hafa verið sakaðir um glæpi gegn mannkyni af alþjóðlega sakamáladómstólnum, ICC. Engin lönd voru nefnd í tilkynningunni en ICC hefur meðal annars gefið út handtökutilskapnir á hendur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra Ísraels og Vladimírs Pútíns forseta Rússlands. Listahátíðin sem haldin er á tveggja ára fresti hefur oft verið kölluð ólympíuleikar myndlistar. Þjóðir heims senda fulltrúa sína til Feneyja sem beinlínis keppa í myndlist. Dómnefndin hefur það hlutverk að velja bestu þjóðarskálana. Fresta verðlaunaafhendingunni fram í nóvember Það hefur gustað allhressilega um stjórn tvíæringsins á síðustu vikum vegna þátttökku Ísraels og Rússlands í ár. Fyrr í þessum mánuði afturkallaði Evrópusambandið tveggja milljón evra styrk til hátíðarinnar í mótmælaskyni við þátttöku Rússa. Það eru nærri 290 milljónir króna. Verðlaunaafhending hátíðarinnar hefur verið frestað vegna þessa. Hún átti að fara fram á opnunardegi tvíæringsins, 9. maí. Hún verður þess í stað haldin 22. nóvember. Í tilkynningu frá stjórn tvíæringsins segir að allar þátttuþjóðir séu gjaldgengar til aðalverðlauna hátíðarinnar. Stjórnin segir að hún hafni hvers kyns ritskoðun og að hátíðin eigi að vera staður friðar í nafni listar, menningar og listræns frelsis.
Go to News Site