Collector
Ný höggmynd eftir Banksy vekur athygli í London | Collector
Ný höggmynd eftir Banksy vekur athygli í London
Fréttastofa RÚV

Ný höggmynd eftir Banksy vekur athygli í London

Ný höggmynd eftir götulistamanninn Banksy hefur litið dagsins ljós í miðborg Lundúna. Skúlptúrinn sýnir mann í jakkafötum sem heldur á stórum fána. Fáninn hylur andlit mannsins sem sér því ekki að hann er við það að ganga fram af stöplinum. Styttunni hefur verið komið fyrir við Waterloo Place, í Westminster-hverfi, skammt frá höggmyndum af Játvarði VII konungi, hjúkrunarkonunni Florence Nightingale og minnisvarða um Krímstríðið. Sérfræðingur segir þetta „snilldarverk“ James Peak, sem er umsjónarmaður hlaðvarpsseríu á BBC um Banksy, segir höggmyndina snilldarverk og að með henni deili Banksy á hrokafulla valdhafa. Peak segir sögu Bretlands litaða af heimsvaldastefnu og að ein birtingarmynd hennar sé róttæk þjóðernishyggja sem Banksy hafi andstyggð á. Listamanninn Banksy þarf vart að kynna. Listaverk hans hafa um langt árabil vakið athygli víða um heim. Hann er helst þekktur fyrir veggmyndir sem gjarnan innihalda pólitísk skilaboð. Þær hljóta oft þau örlög að vera fjarlægðar af yfirvöldum. Nafn Banksys er enn á huldu, þrátt fyrir miklar vangaveltur um langt árabil. Fyrr á þessu ári héldu þrír blaðamenn Reuters því fram að þeir hefðu komist að því hver Banksy væri. Hann héti réttu nafni Robin Gunningham og væri maður á sextugsaldri frá Bristol. Gunningham hefur staðfastlega neitað því og sömuleiðis lögmaður Banksys.

Go to News Site