Fréttastofa RÚV
Draga þarf úr eftirspurn eftir vændi og færa ábyrgðina meira á þá sem leigja út gistirými þar sem vændi er stundað til að koma í veg fyrir að Ísland verði sífellt vinsælli áfangastaður fyrir kynlífsmansal. Þetta segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Rætt var við hana í kvöldfréttum sjónvarps. Lögreglan geti haldið áfram að eltast við fólk sem brýtur lög um vændiskaup en rót vandans sé eftirspurnin og hve arðbær starfsemin er. Hún tekur undir áherslur Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, að herða þurfi refsingar og afnema nafnleynd í tengslum við vændiskaup. „Við þurfum að fara á þessa staði markvisst og hafa samband við gistieigendur og biðja þá líka um að úthýsa þessari starfsemi þannig að skipulögð brotasamtök geti ekki lengur leigt þessa staði,“ segir Alda Hrönn. Dæmi séu um að þolandi mansals komi nokkrum sinnum hingað til lands og sé látinn bæði flytja fíkniefni milli landa og stunda vændi. Samfélagið þurfi að ákveða að slíkt verði ekki liðið hér á landi. „Þetta er mjög arðbært og það er það sem við þurfum að koma í veg fyrir og auðvitað bara að karlar hætti að kaupa vændi,“ segir Alda Hrönn. „Við getum endalaust elt en eftirspurnin er það sem drífur.“ Lögreglan getur haldið áfram að eltast við fólk sem brýtur lög um vændiskaup en rót vandans er eftirspurnin og hve arðbær starfsemin er, segir yfirlögfræðingur Lögreglunnar á Suðurnesjum.
Go to News Site