Fréttastofa RÚV
Sigurður Snorrason, eigandi Reykjavík Bruggfélags, er á höttunum eftir týndu vegglistaverki. „Ég er að leita að ljósmynd, helst í lit, sem sýnir alla þessa veggmynd sem var í anddyri Tónabíós, Skipholti. Staðurinn er nú opinn og tónlistin komin aftur í húsið, svo okkur langar að endurgera þessa mynd. Allar vísbendingar vel þegnar,“ skrifar Sigurður í Facebook-hópnum Gamlar ljósmyndir . Með færslu Sigurðar fylgir mynd, sem hann telur um tíu ára gamla, af vegglistaverkinu en hún var tekin á þeim tíma sem Vinabær var í húsinu. Stór hluti verksins er hins vegar hulinn sökum óheppilegrar staðsetningar Pepsi Max-sjálfsala. „Veggmyndin var á veggnum þar til fyrir nokkrum árum þegar hún hvarf undir sprunguviðgerðir og sparsl, því miður,“ skrifar Sigurður. Tónlistarfélagið í Reykjavík upprunalegur eigandi hússins „Sagan hérna tengir húsið við tónlist,“ segir Sigurður fréttamanni. Hann telur að myndin hafi verið á veggnum síðan húsið var opnað árið 1962. Það var þá í eigu Tónlistarfélagsins í Reykjavík sem rak Tónlistarskólann í Reykjavík í húsinu. Salurinn í Tónabíó var nýttur til bíósýninga en líka undir tónlistarviðburði. Þaðan kemur heitið Tónabíó. Reykjavík Bruggfélag hefur lagt áherslu á að endurvekja hlutverk hússins í íslensku menningarlífi og hefur reglulega verið flutt lifandi tónlist á ný í húsinu síðan bruggfélagið opnaði þar árið 2023. Sigurður telur myndina sýna stjórnanda að stýra hljómsveit. „Við viljum endilega endurgera myndina og þess vegna erum við að leita að einhverri ljósmynd af verkinu og vonandi getum við þá endurgert hana og viðhaldið sögunni,“ segir Sigurður.
Go to News Site