Collector
Valsmenn einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum | Collector
Valsmenn einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum
Fréttastofa RÚV

Valsmenn einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum

Bjarni í Selvindi var öflugur hjá Val í kvöld.RÚV / Mummi Lú Valsmenn eru aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitli karla í handbolta eftir sigur á FH, 32-30 í þriðja úrslitaleik liðanna á Hlíðarenda í kvöld. Valur er nú 2-1 yfir í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari. Valur getur því með sigri á FH í Kaplakrika á mánudagskvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Vinni FH mætast liðin í oddaleik næsta fimmtudagskvöld, 7. maí að Hlíðarenda. Bjarni í Selvindi var markahæstur Valsmanna í kvöld með sex mörk. Björgvin Páll Gústavsson varði 12 skot í marki Vals í kvöld og var með 42% markvörslu skv. HbStatz. Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði níu mörk fyrir FH.

Go to News Site