Fréttastofa RÚV
Fyrir leik Grindavíkur/Njarðvíkur og Þórs/KA í kvöld.RÚV / Mummi Lú Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur vann í kvöld sinn fyrsta leik í Bestu deild kvenna þegar liðið vann Þór/KA 2-1 í Grindavík. Suðurnesjaliðið er nýliði í Bestu deildinni. Erin Flurey kom norðankonum yfir en Natasha Anasi jafnaði fyrir Grindavík/Njarðvík áður en Sigríður Emma Jónsdóttir skoraði sigurmarkið á loka mínútu leiksins. Í hinum leik kvöldsins vann Þróttur svo 2-1 sigur á FH. Berglind Freyja Hlynsdóttir kom FH yfir en Sigríður Th. Guðmundsdóttir og Kayla Rollins skoruðu mörk Þróttar. Þetta var fyrsti sigur Þróttar í deildinni í sumar.
Go to News Site