Collector
Flestir treysta Sönnu | Collector
Flestir treysta Sönnu
Fréttastofa RÚV

Flestir treysta Sönnu

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, er sá oddviti sem flestir borgarbúar treysta. Fæstir treysta Sigfúsi Aðalsteinssyni, oddvita Okkar borgar. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu sem unnin var fyrir Sýn. Sanna er eini oddvitinn í framboði í Reykjavík sem fleiri treysta en ekki. 40,4 prósent þátttakenda sögðust treysta Sönnu vel en 34 prósent treysta henni illa. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, fylgir á eftir Sönnu en 30,3 prósent segjast treysta henni vel. Þar á eftir er Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, sem nýtur trausts 28,4 prósenta borgarbúa. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, nýtur trausts 25,3 prósenta og 20,9 prósent treysta Silju Sóleyju Birgisdóttur, oddvita Sósíalista. Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar, og Kristni Jóni Ólafssyni, oddvita Pírata, er báðum treyst af rétt rúmum 18 prósentum borgarbúa. 12,8 prósent treysta Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, og 8,8 prósent Guðmundi Inga Þóroddssyni, oddvita Flokks fólksins. Fæstir treysta Ingimari Þór Friðrikssyni, oddvita Góðs dagsins, eða 5,2 prósent og, eins og fram hefur komið, Sigfúsi Aðalsteinssyni, oddvita Okkar borgar, en einungis 4,7 prósent borgarbúa treysta honum. Hverjum treystir þú illa? Borgarbúar voru einnig spurðir hvaða oddvitum þeir treystu illa. Niðurstaða þeirrar könnunar rímar vel við þá fyrri. Könnunin skoðaði líka hvernig kjósendur treysta oddvitum annarra flokka en þeirra sem þátttakendur ætla að kjósa. Þar stendur upp úr að 85 prósent kjósenda Viðreisnar treysta Ara illa og 71 prósent kjósenda Miðflokksins treysta Björgu illa. Könnunin tók einnig mið af kyni þátttakenda. Lítill munur var alla jafna á milli kynja nema þegar kemur að trausti til Ara Edwalds. 17,6 prósent karla treysta Ara vel en einungis 6,2 prósent kvenna. Þá var tekið mið af búsetu. Í miðborg, Vesturbæ, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti, Bústöðum, Breiðholti og Árbæ er Sönnu treyst best. Í Grafarvogi, Grafarholti, Úlfarsárdal og Kjalarnesi er mest traust til Hildar.

Go to News Site