Fréttastofa RÚV
Dómsmálaráðherra segir andvaraleysi og stefnuleysi hafa ríkt varðandi vændi á Íslandi. Hún vill þyngja refsingar fyrir vændiskaupendur og að meginreglu sakamála sé fylgt þannig að nöfn ákærða séu birt. „Menn geta í dag, ef þeir eru teknir fyrir vændiskaup, þá fara þeir til lögreglunnar og borga sekt. Og þeir bruna til lögreglunnar og borga sektina því þeir vilja ekki að málið fari neitt lengra,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í Kastljósi. „En við erum að tala um að brotin varði ákæru, að menn sæti ákæru.“ Hún sjái ekki fyrir sér að málin verði á því alvarleikastigi að fangelsi landsins fyllist en málin fari í dómsmeðferð og brotin á sakaskrá. Þetta verði líklega til þess að auka álag á dómskerfið en á móti kólni vændismarkaður. „Ég er þeirrar skoðunar, og þannig eru lögin okkar byggð upp á Íslandi, að þegar mál fara fyrir dóm þá er það algjör meginregla að réttarhaldið sé opið og nafnið birt. Það er í algjörum undantekningartilfellum sem nafnið er ekki birt og þá til að verja hagsmuni þolenda. Það á ekki við í þessu og ég er bara að segja, við eigum ekki að vera að gefa einhvern afslátt eða undanþágur fyrir vændiskaupendur.“ Hefur þetta bara verið tillitsemi af hálfu dómstóla við vændiskaupendur hingað til? „ Mér finnst þetta vera ákveðin hugsanavilla af hálfu kerfisins alls.“ Skoða þurfi regluverkið og lagaumgjörðina auk þess sem skilgreina eigi vændi í samræmi við alvarleikastig. „Vændi er í kynferðisbrotakaflanum okkar, og af ástæðu,“ segir Þorbjörg. „Ég veit það líka úr fyrra starfi að auðvitað er það ekki þannig að allar konur og allar stelpur í vændi séu mansalsþolendur en þessi tengsl eru rosalega sterk.“ Dómsmálaráðherra vill að meginreglu sé fylgt svo nöfn þeirra sem brjóta gegn lögum um vændiskaup séu birt opinberlega. Vændiskaupendur eigi ekki að vera undanþegnir nafnbirtingu. Skoða þurfi lagaumgjörðina í heild.
Go to News Site