Collector
„Ég held að við séum bara rétt að byrja“ | Collector
„Ég held að við séum bara rétt að byrja“
Fréttastofa RÚV

„Ég held að við séum bara rétt að byrja“

Formaður Vinstri grænna segir flokkinn tala skýrt inn í tómarúm sem myndast hafi í íslensku stjórnmálaumhverfi. Flokkurinn mælist inni á þingi í fyrsta sinn í rúm tvö ár í Þjóðarpúlsi Gallup. Samkvæmt könnunninni um fylgi flokka í apríl mælast Vinstri græn með fimm komma eitt prósent fylgi og fengi þrjá þingmenn. Vinstri græn duttu út af þingi í síðustu kosningum og hefur ekki mælst inni síðan í mars 2024. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörinn nýr formaður flokksins á landsfundi í byrjun mars. Hún segir niðurstöðu hennar gefa góð fyrirheit. „Ég held að við séum bara rétt að byrja og við finnum bara þessa hreyfingu og meðbyr með okkur. Þetta eru góð tíðindi og við erum gríðarlega ánægð með að sjá þessar tölur. Það gefur okkur bara meðbyr með okkur næstu tvær vikurnar og svo áfram veginn.“ Að mati Rósu Bjarkar skýrist aukið fylgi flokksins meðal annars af því að fólk þyrstir í skýrari pólitíska sýn í umhverfismálum. Þar að auki hljóti forystuskipti að hafa einhver áhrif þó hún segi að erfitt fyrir hana sjálfa að dæma um það. „Ég held það skipti samt máli að við höfum skipt um forystu í flokknum og kusum okkur líka nýja stjórn, nýtt flokksráð og nýja stjórn í Ungum Vinstri grænum, auðvitað hefur þetta allt saman áhrif. En það hefur líka áhrif að við erum að tala mjög skýrt inn í ákveðið pólitískt tómarúm sem að snýst um réttláta pólitík, félagshyggju, vinstrimennsku og svo líka grænu málin, umhverfismálin.“

Go to News Site