Collector
Umfang eftirlitsins ræðst af viðbrögðum olíufélaganna | Collector
Umfang eftirlitsins ræðst af viðbrögðum olíufélaganna
Fréttastofa RÚV

Umfang eftirlitsins ræðst af viðbrögðum olíufélaganna

Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr dælu tók gildi í dag og varir fram til enda ágústs. Lækkunin nemur um þrjátíu krónum á lítrann, bæði á bensíni og dísil. Lækkunin er liður í efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar til að bregðast við verðhækkunum á olíu vegna stríðsins í Miðausturlöndum. Tímabundið lagaákvæði skyldar olíufélög og söluaðila eldsneytis til að skila verðlækkun að fullu til neytenda. Samkeppniseftirlitið mun fylgjast með því og hefur heimildir til að sekta olíufélög sem brjóta lögin. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að verið sé að undirbúa og móta eftirlit á grundvelli nýrra laga. „Við munum eftir helgi senda félögunum gagnabeiðni og leggja upp gagnaöflun. Síðan munum við leita sjónarmiða þeirra um viðmið í þessu eftirliti. Við munum einnig leita sjónarmiða frá ASÍ, Neytendasamtökunum, FÍB og eftir atvikum fleirum,“ segir Páll. Til standi að bæta við starfsfólki, en að öðru leyti sé erfitt að átta sig á hversu viðamikið eftirlitið verður. „Það ræðst af því hver viðbrögð félaganna eru,“ segir hann. „Ef fyrirtækin, eins og maður getur gert ráð fyrir í samkeppnisumhverfi, nýta tækifæri og fara að keppa og jafnvel sækja markaðshlutdeild og svo framvegis, þá vakna kannski engar spurningar og eftirlitið verður auðvelt. Ef félögin hins vegar draga lappirnar og við sjáum að álagningin fer fljótlega upp aftur, þá getur eftirlitið orðið viðameira.“ Páll segir ekki ákjósanlegt að grípa þurfi til slíkra aðgerða í samkeppnisumhverfi. „En ég held að það sé nauðsynlegt. Það ríkir fákeppni á þessum markaði og samkeppnin er ekki nægilega frísk, það eru allar vísbendingar um það. Þess vegna er þetta nauðsynlegt,“ segir Páll.

Go to News Site