Fréttastofa RÚV
Ísraelsmenn hafa sleppt þeim 176 sem teknir voru höndum um borð í bátum Sumud-flotans á alþjóðlegri siglingaleið á Miðjarðarhafi aðfaranótt fimmtudags. Tveir forsvarsmenn eru enn í haldi grunaðir um ólöglegt athæfi og minnst 31 þurfti á læknisaðstoð að halda að sögn grískra yfirvalda, sem tóku á móti fólkinu. Hinir handteknu voru beittir ofbeldi um borð í ísraelsku herbátunum að sögn skipuleggjenda fararinnar, sem ætlað er að færa stríðshrjáðum íbúum Gaza neyðaraðstoð. Leiðtogar nokkurra ríkja hafa fordæmt handtökurnar og sagt þær bera keim mannráns og séu brot á alþjóðalögum. Ísraelsk stjórnvöld segja af og frá að þau vilji stöðva flutning hjálpargagna til Gaza en saka bátsverja um fylgispekt við Hamas.
Go to News Site