Fréttastofa RÚV
Jazzþorpið á Garðatorgi í Garðabæ opnaði í gær með pompi og prakt og verður með þétta dagskrá alla helgina, en þetta er í fjórða sinn sem viðburðurinn er haldinn. Ómar Guðjónsson, listrænn stjórnandi Jazzþorpsins, segir gæða tónlist óma um þorpið frá hádegi til kvölds. „Garðabær heldur þessa hátíð núna í fjórða sinn og er þetta veglegra út af 50 ára afmæli Garðabæjar. Einnig erum við alltaf með þessi húsgögn sem eru öll til styrktar Alzheimer-samtökunum,“ segir Ómar. Þeir sem gera sér ferð í Jazzþorpið geta því hlustað á lifandi djasstónlist og fest sér kaup á húsgögnum í þágu góðs málefnis.
Go to News Site