Collector
Starmer segir að banna megi samkomur í sumum tilfellum | Collector
Starmer segir að banna megi samkomur í sumum tilfellum
Fréttastofa RÚV

Starmer segir að banna megi samkomur í sumum tilfellum

Breski forsætisráðherrann Keir Starmer sagði í viðtali á BBC réttlætanlegt að banna sumar samkomur til stuðnings Palestínumönnum , ekki síst ef hvatt er til uppreisnar eða intifada um allan heim. Algengt er að kyrjað sé „heimsvæðum intifada“ á mótmælasamkomum á Bretlandseyjum. Intifada nær yfir borgaralega uppreisn Palestínumanna gegn Ísrael á árunum 1987 til 1993 og aftur á fyrri hluta þessarar aldar. Samtök gyðinga í Bretlandi álíta slagorðið afar hættulegt, að sögn Starmers. Keir Starmer hefur verið brýndur til að bregðast við vegna vaxandi gyðingaandúðar á Bretlandseyjum, meðal annars eftir hnífaárás á tvo gyðinga í norðurhluta Lundúna í vikunni. Ráðherra heimsótti vettvang glæpsins þar sem íbúar bauluðu á hann og sökuðu hann um að gera ekki nóg til verndar þeim. Starmer starfaði lengi sem mannréttindalögfræðingur og kvaðst í viðtalinu af öllum mætti styðja málfrelsið og friðsöm mótmæli. Hins vegar þyrfti að bregðast hart við skilaboðum af þessu tagi. Hafa þurfi eftirlit með þeim skilaboðum sem mótmælendur senda, sagði Starmer, og bætti við að stjórnvöld hefðu undanfarið rætt við lögreglu um hvernig hún skuli bregðast við. Lundúnalögreglan og lögreglan í Manchester sögðust í desember handtaka hvern þann sem hrópaði slagorðin.

Go to News Site