Fréttastofa RÚV
„Ég var að reyna að gera eitthvað sem ég hafði ekki heyrt áður og vildi kannski bara svolítið hlusta á sjálfur, sko,“ segir Friðrik Margrétar-Guðmundsson, þegar hann er spurður að því úr hverju lögin spretti. Ymur er önnur plata Friðriks en árið 2020 gaf hann út plötuna Skipholt. Hann segir plöturnar tvær vera talsvert ólíkar. Sú fyrri er útskriftarverkefni úr Listaháskólanum og átti meira skylt við klassíska tónlist en sú nýja. „Ymur er hins vegar verkefni sem hefur verið með mér mjög lengi. Eiginlega bara næstum því í heilan áratug. Þetta eru lög sem hafa legið í skúffunni að mestu leyti í svolítið langan tíma og er þá meira eitthvað sem ég er að gera allt sjálfur og með tækni sem er svolítið þægilegt að vinna með þegar maður er bara einn. Þetta er mest gert í forritum og með synthum og hljóðfærum sem ég get spilað á sjálfur,“ segir Friðrik. „Þetta er mjög mikið ég einn að gera eitthvað og meitla eitthvað til lengri tíma og svo er það loksins búið að koma út.“ Ekki endilega best að verja allt of miklum tíma í verkefnin Hann segist hafa varið miklum tíma í gerð plötunnar, en það sé þó ekki endilega besta vinnuaðferðin, að verja of miklum tíma í að gera hlutina. „Það var gaman að geta eytt mjög miklum tíma í þetta og prófa ýmislegt. Sumu henti ég í ruslið og annað fékk að lifa. Þannig að þetta er búið að vera mjög mikið nostur og margar, margar útgáfur sem eru til af þessum lögum sem munu aldrei sjá dagsljósið.“ Tók upp söng með heyrnartólum Meðal þess sem vekur athygli á plötunni eru flóknar raddútsetningar. Að baki þeim er rödd úr aðeins einum barka. „Mér finnst mjög gaman að taka upp röddina mína. Ég hef alltaf verið smá smeykur við að syngja sjálfur og hef lengi búið yfir miklum komplexum gagnvart söngnum mínum. Mér finnst náttúrlega mjög skemmtilegt að vinna með röddina mína því ég þekki hana vel og get gert ýmislegt með hana þó að hún sé auðvitað með sínar grensur.“ Friðrik var ekki feiminn við tilraunamennsku þegar kom að gerð plötunnar. Gott dæmi um hana má finna í laginu Filter. „Þetta er eiginlega bara tekið upp á iPod-heyrnartól. Það er lítill míkrófónn á þeim. Ég tók upp sjálfan mig, gerði einhvern bassa með röddinni og svo einhverja laglínu og svo söng ég ofan á hverja laglínuna á fætur annarri og bjó til kór.“ Heillaður af kenningum um samhljóm heimsins Orðið Ymur hringir vafalaust einhverjum bjöllum meðal dyggra hlustenda Rásar 1 en Friðrik stýrði samnefndum útvarpsþáttum á rásinni um nokkurt skeið. Honum finnst þetta orð vera fallegt og það hefur fylgt honum lengi. „Einhvers staðar las ég um ym heimsins og ég hef alltaf verið svolítið heillaður af þessum kenningum sem Forn-Grikkir voru með um samhljóm heimsins og hvernig pláneturnar ferðast um eftir einhverjum tíðnum og að það sé hægt að búa til einhvern svona heimshljóm ef það mætti lýsa því þannig.“ Hann segir það kallast á við pælingar í textum plötunnar. „Ég er svona að reyna að binda saman risastórar hugmyndir um hreyfingu himintunglanna við innri tilfinningar og hræringar hjartans.“ Uppgötvar tónlist þegar hann viðrar hundinn Friðrik segir plötuna vera mjög dramatíska. Það gæti haft eitthvað með innblásturinn að textum hennar að gera. „Ég var einhvern veginn mjög upptekinn af heimsenda, endalokum veraldarinnar. Það má segja að áhrifin í textanum séu komin af því. Ég var mikið að pæla í hitadauða alheimsins og sólinni að éta upp jörðina. Svo fór ég að reyna að tengja það við hvernig sambönd manns við annað fólk geta breyst og oft verið svolítið flókin og erfið. Það getur kulnað á milli vina eða elskenda eða maður getur átt erfitt samband við foreldra sína,“ segir hann. „Við erum háð öðru fólki en á sama tíma þá erum við oft svolítið vond hvert við annað.“ Friðrik segir frá því á Facebook að hann hafi lengi vel ekki ætlað sér að gefa lögin út heldur hlusta á þau í göngutúrum með hundinn. Hann hafi svo að lokum ákveðið að sleppa tökunum á lögunum sem nú má finna á plötunni Ymur. Friðrik gerir mikið af því að hlusta á tónlist þegar hann viðrar hundinn og það gerði hann líka sem unglingur. „Mér finnst það hafa verið mín bestu tónlistarlegu augnablik að vera úti með hundinn og uppgötva tónlist og hlusta. Tala nú ekki um ef maður er að labba á kvöldin, þá tekur enginn eftir því hvort maður sé að gráta þegar maður er undir næturhimninum. Það er frábær leið til þess að leyfa tónlistinni að snerta hjartað.“ Ymur nefnist ný plata Friðriks Margrétar-Guðmundssonar. Platan hefur verið í næstum áratug í smíðum. Friðrik spilar tónlistina og syngur allt sjálfur. Eitt lagið á plötunni er sungið inn í gegnum hljóðnema á iPod-heyrnartólum. Rætt var við Friðrik Margrétar-Guðmundsson í Víðsjá. Hægt er að hlusta á viðtal Tómasar Ævars Ólafssonar við tónlistarmanninn í spilaranum hér fyrir ofan.
Go to News Site