Fréttastofa RÚV
Búast má við að dýpkun Landeyjahafnar taki nokkra daga til viðbótar. Hún hefur verið lokuð í næstum þrjá mánuði vegna sandburðar. Vinna hófst af krafti í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni gekk vel að dýpka hafnarmynnið í morgun og er útlitið gott næstu daga. Herjólfur og Baldur sigla báðir til og frá Þorlákshöfn næstu daga. Herjólfur hefur síðustu vikur þurft að sigla til og frá Þorlákshöfn.RÚV / Magnús Alti Magnússon
Go to News Site