Fréttastofa RÚV
Undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta lýkur um helgina. Á morgun mætast Barcelona og Bayern München, með Glódísi Perlu Viggósdóttur fremsta í flokki, og í dag mættust Lyon og Arsenal, sem átti titil að verja í keppninni. Arsenal vann fyrri leikinn um síðustu helgi í Lundúnum 2-1 og Lyon-konur töldu sig hafa jafnað metin strax á 8. mínútu þegar Lindsey Heaps skoraði. Rangstöðuflaggið fór hins vegar á loft og markið taldi ekki. Lyon fékk svo vítaspyrnu skömmu síðar. Wendy Renard tók vítið en Daphne van Domselaar varði. Dómararnir mátu það hins vegar svo að hún hefði verið komin af marklínunni þegar vítið var tekið og því þurfti að endurtaka spyrnuna. Þá skoraði Renard örugglega og kom Lyon yfir og staðan var orðin jöfn samanlagt, 2-2. Þegar tæpt korter lifði fyrri hálfleiks bætti Lyon svo við öðru marki. Kadidiatou Diani skoraði þá og kom Lyon yfir 2-0 og því 3-2 samanlagt. Dramatík í lokin Þegar tæpt korter var eftir svaraði Arsenal fyrir sig. Alessia Russo skoraði og þá var staðan 2-1, eins og í fyrri leiknum, og því allt jafnt samanlagt, 3-3. Á lokamínútu leiksins skoraði Jule Brand hins vegar það sem reyndist markið sem skaut Lyon áfram í úrslitaleikinn. Það þurfti reyndar að bíða ákvörðunar myndbandsdómara þar sem markið var upphaflega dæmt af. Á endanum stóð markið og Lyon vann 3-1 en 4-3 samanlagt og leikur til úrslita í tólfta sinn. Lyon er sigursælasta lið keppninnar með átta titla. Kemst Glódís í úrslitaleikinn gegn Lyon? Í úrslitum mætir Lyon annað hvort Barcelona eða Bayern München sem eigast við á morgun í beinni útsendingu á RÚV klukkan 14:30. Glódís Perla Viggósdóttir lék að venju allan leikinn í vörn Bayern þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri undanúrslitaleik liðanna um síðustu helgi. Sá leikur fór fram í Þýskalandi en á morgun verður leikið í Barcelona.
Go to News Site