Fréttastofa RÚV
Það hljómar kannski ekki eins og naumur sigur að vinna handboltaleik með sex marka mun en sú var þó raunin í dag þegar Valur og ÍBV mættust í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta. Elísa Elíasdóttir skoraði 11 mörk fyrir Val eins og Lovísa Thompson.RÚV / Mummi Lú Sandra Erlingsdóttir skoraði 14 mörk fyrir ÍBV sem var yfir í hálfleik 18-20 og náði svo sex marka mun í seinni hálfleik sem Valskonur unnu upp. Staðan var jöfn 32-32 þegar sex mínútur voru eftir en þá stungu Valskonur af og skoruðu sjö mörk gegn einu marki ÍBV. Lokatölur urðu 39-33 fyrir Val sem er þar með 1-0 yfir í einvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til að hampa titlinum og er næsti leikur í Vestmannaeyjum á þriðjudag.
Go to News Site