Collector
Lögregla með viðbúnað vegna afmælis Hells Angels | Collector
Lögregla með viðbúnað vegna afmælis Hells Angels
Fréttastofa RÚV

Lögregla með viðbúnað vegna afmælis Hells Angels

Fjölmennt lið lögreglu er við félagsheimili Hells Angels í Auðbrekku í Kópavogi. Samtökin halda upp á afmæli sitt og hafa boðið félögum í öðrum bifhjólasamtökum að taka þátt. Lögregla fylgist með því sem fram fer í veislunni, tekur niður nöfn þeirra sem mæta á staðinn og leitar á fólki. Lögreglan hefur áður haft mikinn viðbúnað þegar Hells Angels hafa verið með samkomur. Það gerðist í tvígang í september. Þá sagði fulltrúi lögreglu að full ástæða væri fyrir slíkum viðbúnaði þar sem samtökin ástunduðu skipulagða brotastarfsemi. Einn félaganna sagði í viðtali við fréttastofu í kvöld að vinum og ættingjum hefði verið boðið til veislunnar til að halda upp á afmælið. Hann sagði að félögum úr öðrum íslenskum bifhjólahópum væri boðið en að engir gestir kæmu frá útlöndum.

Go to News Site