Fréttastofa RÚV
Baráttan um Englandsmeistaratitil karla í fótbolta verður hörð í ár milli Arsenal og Manchester City. Eftir að Arsenal hafði missti niður gott forskot sitt á toppnum skilur aðeins markatalan að, klári liðin bæði sína leiki. Arsenal gerði sitt í sigri gegn Fulham í dag og Viktor Gyökeres kom liðinu yfir á 9. mínútu. Bukayo Saka lagði upp mark Gyökeres og þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik snerust hlutverkin við. Gyökeres undirbjó fyrir Saka sem skoraði og kom Arsenal í 2-0. Heimamenn voru ekki hættir og í uppbótartíma bætti Gyökeres við öðru marki sín og 3-0 urðu lokatölur. Arsenal er nú með sex stiga á toppnum en helsti keppinauturinn, Manchester City, leikur ekki fyrr en á morgun og á tvo leiki til góða. Líflína til Tottenham eftir tap West Ham Fallbaráttan er ekki síður hörð en toppbaráttan. Úlfarnir og Burnley eru fallin en Tottenham, West Ham og Nottingham Forest berjast við fallið. West Ham sótti Brentford heim í dag og tapaði 3-0. West Ham er tveimur stigum á undan Tottenham, sem situr í fallsæti, en Tottenham sækir Aston Villa heim á morgun og getur þá með sigri komist úr fallsæti þegar þremur umferðum verður ólokið. Úrslit dagsins Brentford - West Ham 3-0 Newcastle - Brighton 3-1 Wolves - Sunderland 1-1 Arsenal - Fulham 3-0
Go to News Site