Collector
Orkuskiptin megi ekki vera á kostnað fátækari þjóða | Collector
Orkuskiptin megi ekki vera á kostnað fátækari þjóða
Fréttastofa RÚV

Orkuskiptin megi ekki vera á kostnað fátækari þjóða

Erindrekar yfir fimmtíu landa komu saman í Kólumbíu á fyrstu alþjóðlegu loftslagsráðstefnunni sem snýr nánast eingöngu að orkuskiptum og hvernig hægt sé að hætta notkun jarðefnaeldsneytis. Fulltrúar frumbyggja Suður-Ameríku segja mikilvægt að við orkuskiptin verði stutt við þær þjóðir sem reiða sig á útflutning jarðefnaeldsneytis. „Við setjum fram ýmsar kröfur, meðal annars að fjárstuðningur vegna orkuskiptanna nái til okkar landa og þjóða, segir Patricia Suarez, talsmaður frumbyggja Suður-Ameríku. Þau krefjast réttlætis fyrir þau sem eru nú að kljást við afleiðingar gróðurhúsalofttegunda og loftslagsbreytinga sem aðrar þjóðir bera mesta ábyrgð á.“ Efnt var til kröfugöngu og þess krafist að lönd sem flytja út og selja jarðefnaeldsneyti til annarra þjóða verði ekki látin bera hitann og þungann af orkuskiptunum. Xiye Batiste fer fyrir hópi ungra umhverfisaktívista í Rómönsku Ameríku og hefur verið kölluð hin mexíkóska Greta Thunberg. Hún er einnig hluti af hinum svokölluðu Gæslumönnum jarðar, sem er hópur einstaklinga úr ólíkum stéttum, frá ólíkum löndum og af ólíkum aldri. Þeirra á meðal eru fyrrverandi forseti Kólumbíu, fyrrverandi forsætisráðherra Írlands, vísindamenn og fræðimenn. Xiye segir mjög mikilvægt að móta áætlun um hvernig standa eigi að orkuskiptum á heimsvísu. „Núna stefnum við í átt að því að heimurinn hlýni um fjórar gráður fyrir næstu aldamót og eina leiðin til þess að ná kúrfunni niður í hlýnun um eina komma fimm gráður er ef við hættum að brenna jarðefnaeldsneyti,“ segir Xiye. Orkuskiptin séu ekki einföld í framkvæmd. „Þetta er ekki eins einfalt og að skrifa undir skjal þess efnis, þetta þarf að gerast eftir ákveðinni röð og reglu þannig að þau sem reiða sig á útflutning jarðefnaeldsneytis beri ekki skaða af.“ Hún er bjartsýn á að ráðstefnan í Kólumbíu leiði af sér raunverulegar breytingar, ólíkt því sem hefur oft verið raunin eftir fyrri ráðstefnur. „Á COP-ráðstefnunum undanfarin 30 ár hafa jarðefnaeldsneyti ekki verið rædd, þrátt fyrir að þau séu stærsti mengunarvaldur og helsta ástæða losunar gróðurhúsalofttegunda í heimi. Þessi ráðstefna er öðruvísi að því leyti að hér er raunverulega verið að ræða vandann sem fylgir jarðefnaeldsneyti og hvernig hægt sé að hætta notkun þess, en einnig vegna þess að þau lönd sem mættu eru sammála um þetta og vilja taka þátt í þessu verkefni,“ segir Xiye. Umhverfisverndarsinnar og frumbyggjar Suður-Ameríku krefjast þess að vestrænar þjóðir komi til móts við lönd sem reiða sig á útflutning jarðefnaeldsneytis við fyrirhuguð orkuskipti og hætti að arðræna þau.

Go to News Site