Collector
„Vondir gaurar að gera góða hluti“ | Collector
„Vondir gaurar að gera góða hluti“
Fréttastofa RÚV

„Vondir gaurar að gera góða hluti“

Alþjóðlegur dagur Stjörnustríðs er 4. maí ár hvert og bókasafn Hafnarfjarðar hélt upp á daginn í dag, tveimur dögum á undan áætlun. Unnur Helga Möller, viðburðastjóri Bókasafns Hafnarfjarðar, segir nauðsynlegt fyrir alla, jafnt unga sem aldna, að leika sér. Fimmhundraðasta og fyrsta hersveit keisarans ásamt hetjum í geislasverðafélaginu mættu á bókasafn Hafnarfjarðar í dag. Í byrjun maí ár hvert stendur mikið til hjá aðdáendum Stjörnustríðs. „Það eru margir mismunandi hópar sem tilheyra þessu, það er fimmhundraðasta og fyrsta herdeildin, það er Geislasverðafélagið, það er Rebel Legion og það eru Mandalorians. Þetta eru allt mismunandi hópar af einstaklingum sem stunda það að búa til búninga sem eru tilbúnir á sett.“ Unnur segir um alþjóðleg góðgerðarsamtök vera að ræða. Hún segir markmið hópsins vera að gera fólk hamingjusamt og á sama tíma að safna fyrir góðum málstað. „Eins og fimmundraðasta og fyrsta segir, þeir eru vondir gaurar að gera góða hluti.“

Go to News Site