Collector
KR skoraði fjögur gegn Val og er enn með fullt hús á toppnum | Collector
KR skoraði fjögur gegn Val og er enn með fullt hús á toppnum
Fréttastofa RÚV

KR skoraði fjögur gegn Val og er enn með fullt hús á toppnum

Valur og KR mættust í stórleik fimmtu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. KR vann fyrstu fjóra leiki sína í deildinni og var á toppnum með fullt hús stiga en Valur hafði unnið síðustu þrjá leiki í röð eftir óvænt tap gegn nýliðum Þórs í fyrstu umferð. KR ingar hafa byrjað alla sína leiki í deildinni af miklum krafti og aldrei skorað fyrsta markið síðar en á 12. mínútu leikjanna. Engin breyting varð á því í kvöld og Ástbjörn Þórðarson kom KR yfir á 10. mínútu með föstum skalla eftir fyrirgjöf. KR ingar stýrðu leiknum eftir þetta og mikill sóknarþungi hafði legið á Valsmönnum þegar Stefán Árni Geirsson skoraði annað mark KR á lokamínútu fyrri hálfleiks. Skot Stefáns hafði viðkomu af varnarmanni og Frederik Schram markmaður Vals náði ekki til boltans. KR hafði á þessum tímapunkti verið 66% með boltann og staðan í hálfleik var 0-2. Rautt spjald í hálfleik Valsmenn vildu fá vítaspyrnu á 21. mínútu í stöðunni 0-1 og létu þá skoðun sína hressilega í ljós í garð dómarans í hálfleik. Svo hressilega í hálfleik reyndar að Emil Larsen markvarðaþjálfari Vals fékk rauða spjaldið fyrir ítrekuð mótmæli eftir að hafa fengið gult spjald. Hermann Hreiðarsson þjálfari Vals sagði í viðtali við RÚV eftir leik að hann hefði séð atvikið aftur og var sannfærður um að Valsmenn hefðu verið snuðaðir um víti. Yfirburðir KR voru áfram miklir í seinni hálfleik og Stefán Árni bætti öðru marki sínu við á 61. mínútu og 0-3 var staðan allt þar til komið var fram í uppbótartíma. Þá tókst Valsmönnum að minnka muninn í 1-3 þegar Dagur Orri Garðarsson slapp einn inn fyrir vörn KR. Valsmenn freistuðu þess að bæta við en fengu þess í stað annað mark í andlitið þegar Amin Cosic komst einn á móti markmanni eftir misheppnaða hreinsun Harðar Inga Gunnarssonar sem var aftasti maður Vals. 1-4 urðu lokatölur og KR trónir á toppi deildarinnar með 15 stig, fimm stigum á undan Víkingi sem er í 2. sæti en á leik til góða. Fyrsti sigur KA kom í Akureyrarslagnum Fimmta umferð hófst fyrr í dag með öðrum stórleik þegar Þór og KA mættust á Akureyri. Þetta var fyrsti Akureyrarslagurinn í efstu deild karla í fótbolta í 24 ár. Í dag var leikið á glænýjum heimavelli Þórs sem var tekinn í notkun í síðustu umferð deildarinnar. Spennustigið var hátt og það stefndi í markalaust jafntefli en KA fékk vítaspyrnu þegar tæpar fimm mínútur voru eftir. Brotið var á Hallgrími Mar Steingrímssyni sem tók vítið sjálfur og skoraði. Þetta reyndist sigurmarkið og KA vann sinn fyrsta leik í deildinni í sumar. Þór er í sjöunda sæti með 6 stig og KA í níunda með 4 stig.

Go to News Site