Fréttastofa RÚV
Ríkissjónvarp Sýrlands greindi frá því í dag að Jórdanir hefðu ráðist á nokkra staði í sunnanverðu Suweida-héraði, sem er að hluta ekki undir stjórn sýrlenskra yfirvalda. Drúsar, trúarhópur sem er í minnihluta í Sýrlandi, eru í meirihluta í héraðinu. Fréttastofa ríkismiðilsins vitnaði í einstaklinga frá svæðinu sem sögðu það líklegt að jórdanski herinn hefði beint árásum sínum á höfuðstöðvar uppreisnarmanna í þorpinu Shahba, þar sem geymd eru vopn og fíkniefni. Jórdanski herinn segir hernaðaraðgerðina hafa verið í því fælingarskyni, og að hún hafi beinst að nokkrum stöðum þar sem vopna- og eiturlyfjaflytjendur starfa nærri landamæramörkum Jórdaníu. AFP-fréttaveitan hefur eftir heimildarmönnum á svæðinu að loftárásir hafi beinst að fimm skotmörkum hið minnsta, þar á meðal vörugeymslu í sýrlenska bænum Arman.
Go to News Site