Fréttastofa RÚV
Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti biðlar til heimsbyggðarinnar að bregðast við hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um næstum umsvifalausa innrás. Hann hefur áður hótað aðgerðum gegn landinu. Diaz-Canel sagði í færslu á X ógnina frá Bandaríkjunum aukast dag frá degi. „Alþjóðasamfélagið verður að ákveða hvort slík ofbeldisfull glæpastarfsemi verði leyfð til þess eins að efla hagsmuni lítils en auðugs og áhrifamikils hóps, þeirra sem leita hefnda og kúgunar,“ skrifaði Diaz-Canel. Trump undirritaði tilskipun á föstudag þar sem enn er hert á viðskiptaþvingunum gegn Kúbu og hótaði innrás í ræðu. Djúp orkukreppa fylgir hafnbanni sem Trump setti á afhendingu olíu frá Venesúela í janúar ásamt miklum matvæla- og lyfjaskorti . Bandaríkin settu viðskiptabann á Kúbu árið 1962, sem enn er í gildi. Enn var hert á því undir lok síðustu aldar. Sú stefna hefur verið gagnrýnd harðlega og Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur oft ályktað gegn viðskiptabanni Bandaríkjanna og krafist þess að þau láti því lokið.
Go to News Site