Collector
Tæplega fertugur karlmaður handtekinn grunaður um að blanda eitri í ungbarnamat | Collector
Tæplega fertugur karlmaður handtekinn grunaður um að blanda eitri í ungbarnamat
Fréttastofa RÚV

Tæplega fertugur karlmaður handtekinn grunaður um að blanda eitri í ungbarnamat

Tæplega fertugur austurrískur karlmaður hefur verið handtekinn grunaður um að blanda rottueitri í ungbarnamat frá þýska fyrirtækinu HiPP. Nokkrir miðlar í Austurríki greina frá handtökunni sem gerð var eftir að maðurinn sendi HiPP tölvupóst og krafði það um jafnvirði tveggja milljóna evra greiðslu í rafmynt. Um miðjan apríl lögðu yfirvöld hald á vörur frá HiPP í stórmörkuðum í Tékklandi, Slóvakíu og héraði í austanverðu Austurríki og rannsókn leiddi í ljós að einhverjar þeirra innihéldu rottueitur, sem líklega hefði verið komið fyrir af ráðnum hug. Maðurinn verður ákærður fyrir að ætla að valda öðrum vísvitandi hættu og tilraun til að valda alvarlegu heilsutjóni.

Go to News Site