Fréttastofa RÚV
Hið minnsta þrír voru drepnir í stórfelldum loftárásum Ísraelshers á bæ í Tyre-héraði í Líbanon sunnanverðu í gær. Ríkisfréttastöðin NNA greinir frá þessu. Reykur stígur til himins eftir stórskotaliðsárás Ísraelshers á þorp í sunnanverðu Líbanon 28. apríl.EPA / ATEF SAFADI Frönsku líknarsamtökin L'Oeuvre d'Orient fordæma árás Ísraelshers sem vísvitandi eyðilagði grísk-kaþólskt nunnuklaustur í þorpinu Yaroun. Talsmaður hersins viðurkennir árásina og segir klaustrið hafa skemmst í atlögu að innviðum Hezbollah-hreyfingarinnar. Hann segir jafnframt að herinn hafi grandað um það bil sjötíu hernaðarmannvirkjum og öðrum byggingum hreyfingarinnar um gervallt Líbanon sunnanvert í gær.
Go to News Site