Collector
Karlmaður ákærður fyrir að hafa myrt fimm ára stúlku | Collector
Karlmaður ákærður fyrir að hafa myrt fimm ára stúlku
Fréttastofa RÚV

Karlmaður ákærður fyrir að hafa myrt fimm ára stúlku

Jefferson Lewis, tæplega fimmtugur Ástrali, hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað og myrt Kumanjayi Little Baby, fimm ára stúlku af frumbyggjaættum. Málið hefur vakið mikla sorg meðal Ástrala eftir að lík Kumanjayi fannst rétt fyrir utan bæinn Alice Springs. Lewis var handtekinn eftir að hann hafði gefið sig fram í heimabyggð stúlkunnar, þar sem gengið var illa í skrokk á honum. Lögregla kom honum meðvitundarlausum á sjúkrahús og þaðan í varðhald. Hundruð manna söfnuðust saman fyrir utan sjúkrahúsið, kröfðust hefndar og reyndu að komast inn. Eldur var borinn að farartækjum og nokkrir slösuðust í átökunum. Stúlkan hvarf frá heimili sínu í byggð frumbyggja seint á laugardagskvöldið fyrir viku og þá hófst umfangsmikil leit á jörðu niðri og úr þyrlum, sem lyktaði með því að hún fannst örend eins og áður sagði. Forsætisráðherrann Anthony Albanese hefur vottað fjölskyldunni dýpstu samúð og sagt dauða Kumanjayi snerta hjörtu allra landsmanna. Robin Granites, leiðtogi Warlpiri-ættbálksins, kallar eftir ró í samfélaginu og biður um að fjölskylda stúlkunnar fái að syrgja hana og minnast í friði.

Go to News Site