Fréttastofa RÚV
Ættingjar írönsku andófskonunnar og friðarverðlaunahafans Narges Mohammadi krefjast þess að hún verði umsvifalaust flutt á gott sjúkrahús í höfuðborginni eftir að heilsu hennar hrakaði hratt og illa á föstudag. Norska Nóbelnefndin tekur undir kröfu fjölskyldu Mohammadi sem hlaut friðarverðlaunin 2023 og var handtekin í desember fyrir andóf gegn stjórnvöldum. Mohammadi, sem er 54 ára, var flutt úr Zanjan-fangelsinu á lítið héraðssjúkrahús á föstudag og fjölskyldan telur allt of seint hafa verið brugðist við. Brýnt sé að læknar Mohammadi í Teheran taki við hjúkrun hennar. Hamidreza, bróðir Mohammadi sem er búsettur í Noregi, segir að blóðþrýstingur hennar hafi lækkað mjög hratt og ekki hafi tekist að koma honum í jafnvægi. Hann greindi frá því í apríl að systir hans hefði fundist meðvitunarlaus í fangaklefa sínum, líklega eftir hjartaáfall. Þá hafi fangelsisyfirvöld þvertekið fyrir að færa hana á sjúkrahús þrátt fyrir sögu um æða- og lungnavandamál. Henni hafi verið haldið í fangelsi mánuðum saman án sérhæfðrar læknisaðstoðar. Narges Mohammadi hefur verið handtekin þrettán sinnum og dæmd til alls 31 árs fangavistar fyrir áróður gegn klerkastjórninni og ráðabrugg um að skaða öryggi íranska ríkisins.
Go to News Site