Collector
Tvær milljónir dönsuðu við tónlist Shakiru á útitónleikum á Copacabana-ströndinni | Collector
Tvær milljónir dönsuðu við tónlist Shakiru á útitónleikum á Copacabana-ströndinni
Fréttastofa RÚV

Tvær milljónir dönsuðu við tónlist Shakiru á útitónleikum á Copacabana-ströndinni

Rúmlega tvær milljónir stigu í kvöld dans undir fullu tungli við seiðandi tónlist kólumbísku poppstjörnunnar Shakiru á Cobacabana-ströndinni við borgina Rio de Janeiro í Brasilíu. Ekkert kostaði inn á tónleikana sem eru hluti Las Mujeres Ya No Lloran-túrsins, eða Konur gráta ei meir, sem hófst einmitt í Rio á síðasta ári. Samnefnd plata kom út árið 2024. Shakira Isabel Mebarak Ripoll verður fimmtug snemma á næsta ári og hóf ferilinn árið 1990. Hún hefur nánast frá upphafi verið geysivinsæl í Brasilíu og nánast um gervalla Rómönsku Ameríku ásamt því sem hún á aðdáendur um víða veröld. Shakira hefur selt yfir 90 milljónir platna, fengið fern Grammy-verðlaun og fimmtán latnesk Grammy-verðlaun til viðbótar. Um það bil átta þúsund lögreglumenn gættu öryggis á tónleikunum, gestir þurftu að fara gegnum öryggishlið og drónar sveimuðu yfir. Lögregla sagðist á seinasta ári hafa komið í veg fyrir sprengjutilræði á tónleikum Lady Gaga á Copacabana-ströndinni, sem runnið hefði undan rifjum samtaka sem dreifa hatursáróðri í garð hinsegin fólks. Árið áður mættu um 1,6 milljónir manna á tónleika Madonnu á ströndinni, sem varð eitt iðandi dansgólf.

Go to News Site