Collector
Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins | Collector
Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins
Fréttastofa RÚV

Sóltúnsmálið: Hafa greitt sér rúma þrjá milljarða úr móðurfélagi hjúkrunarheimilisins

Í lok nóvember í fyrra samþykkti embætti Skattsins að heimila eigendum fyrirtækisins Öldungs hf., sem er móðurfélag hjúkrunarheimilisins Sóltúns í Reykjavík að lækka hlutafé þess og greiða tæplega 1,2 milljarða króna út til hluthafanna. Eigendur fyrirtækja geta gert þetta ef fjárhags- og skuldastaða þess er það góð að fyrirtækið geti lækkað hlutafé sitt með útgreiðslu á peningum til hluthafa. Eigendur Öldungs eru þeir Arnar Þórisson og Þórir Kjartansson sem eiga 45 prósent hvor og Anna Birna Jensdóttir sem lengi var forstjóri Sóltúns. Þessi aðferð er stundum notuð til að taka peninga út úr fyrirtækjum án þess að greiða út arð. Tekið skal fram að þessi aðferð er fullkomlega lögleg og verður Skatturinn að samþykkja útgreiðsluna. Hjúkrunarheimilið Sóltún og rekstrarfélag þess, Öldungur hf., hafa verið til umfjöllunar vegna rannsóknar sem nú stendur yfir sem byggir á kæru frá fyrrverandi eiganda hjúkrunarheimilisins. Hann heitir Jóhann Óli Guðmundsson. Jóhann Óli kærði tvo aðaleigendur Sóltúns til lögreglunnar í ársbyrjun vegna meintra vanefnda á meintum kaupsamningi sem hann segist hafa gert við þá Arnar Þórisson og Þóri Kjartansson árið 2009. Í kæru Jóhanns Óla er því haldið fram að Arnar og Þórir hafi ekki greitt honum meint tveggja milljarða króna kaupverð fyrir Sóltún sem þeir, að hans sögn, gerðu samning um. Samkvæmt því sem staðhæft er í kærunni greiddu þeir Arnar og Þórir, eða fyrirtæki í þeirra eigu, ekkert fyrir hjúkrunarheimilið. Lögmaður Þóris, Eva Bryndís Helgadóttir, hefur sagt við fréttastofu að kæran sé tilhæfulaus og að hún verði vonandi felld niður sem fyrst. En hvaða máli skiptir útgreiðsla eigenda Sóltúns á hlutafé upp á tæpar 1200 milljónir króna í þessu samhengi? Eitt af því sem kemur fram í þessari kæru sem nú er til meðferðar hjá lögreglunni er að eigendur Sóltúns hafi hagnast ævintýralega á rekstri þess á sama tíma og fyrri eigandi telur sig hafa verið hlunnfarinn í viðskiptunum með hjúkrunarheimilið. 3,2 milljarðar greiddir út úr félaginu Þessi útgreiðsla upp á 1,2 milljarða króna út úr Öldungi í fyrra bætist við 2 milljarða króna greiðslu til hluthafa Öldungs árið 2021. Þessi greiðsla var innt af hendi með sama hætti og greiðslan nú í nóvember. Hlutafé félagsins var lækkað og embætti Skattsins skrifaði upp á að útgreiðslan væri heimil þar sem skuldastaða Öldungs stæði ekki í veginum fyrir því. Þessi útgreiðsla út úr Öldungi kom í kjölfar þess að eigendur Sóltúns seldu fasteignina sem hýsir rekstur hjúkrunarheimilisins til fasteignafélagsins Regins sem í dag heitir Heimar. Kaupverðið var 3,8 milljarðar króna. Fasteignin var langverðmætasta eign Sóltúns þegar fyrirtækið skipti um hendur árið 2009. Í dag leigir Öldungur hf. fasteignina í Sóltúni af Heimum. Samtals nema þessar tvær greiðslur út úr Öldungi til hluthafanna því að minnsta kosti samtals tæplega 3,2 milljörðum króna. Fjallað er um þessi atriði i viðskiptasögu Sóltúns og Öldungs, í samhengi við áðurnefnda kæru, í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér. Eigendur hjúkrunarheimilisins Sóltúns hafa ítrekað lækkað hlutafé móðurfélags þess og greitt sér háar fjárhæðir út úr fyrirtækinu. Rannsókn stendur nú yfir á sölu Sóltúns árið 2009 þegar núverandi eigendur eignuðust fyrirtækið. Hafa líka selt lóðir á Sóltúnsreitnum Við þessa 3,2 milljarða útgreiðslu hlutafjár bætist að eigendur Öldungs hafa sömuleiðis selt lóðir á Sóltúnsreitnum og tekið hagnaðinn út að hluta með útgreiðslu til hluthafa. Þetta gerðist til dæmis árið 2023, líkt og fjallað var um í Heimildinni fyrir tveimur árum, þegar félag í eigu eigenda Öldungs seldi lóð á Sóltúnsreitnum fyrir 1300 milljónir króna. 280 milljónir voru í kjölfarið greiddar út til hluthafa með sama hætti og lýst er hér að framan. Samtals nema þessar útgreiðslur til hluthafa Öldungs og tengdra félaga því tæplega 3,5 milljörðum króna á síðustu árum. Þessar útgreiðslur byggja að langmestu leyti á sölu hjúkrunarheimilisins sjálfs, fasteignarinnar. Tekjurnar nær alfarið frá íslenska ríkinu En það er annað inni í Öldungi sem var verðmætara en bara fasteignin þegar fyrirtækið skipti um hendur árið 2009 og enn þann dag í dag. Þetta er þjónustusamningurinn við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur starfseminnar. Rekstur Sóltúns hjúkrunarheimilis byggir nær alfarið á þessum samningi við íslenska ríkið, eins og raunar segir í ársreikningi félagsins ár hvert. Þar stendur: „Öldungur hf. rekur hjúkrunarheimilið Sóltún samkvæmt þjónustusamningi við ríkið og byggir rekstur félagsins á daggjöldum og öðrum framlögum frá Sjúkratryggingum Íslands.” Þessi þjónustusamningur var upphaflega til 25 ára, frá árinu 2000 til 2025, og var endurnýjaður þá. Rekstrartekjur Öldungs námu rúmlega 2,5 milljörðum árið 2024 og hagnaðist fyrirtækið um 8,5 milljónir króna það ár en var tæplega 214 milljónir árið á undan. Þessi samningur tryggir Öldungi því vel á þriðja milljarð króna í tekjur á hverju ári í dag. Þegar fyrirtækið skipti um hendur árið 2009 voru rekstrartekjur Öldungs rúmur milljarður króna, að langmestu leyti peningar frá íslenska ríkinu. Síðastliðin 25 ár hefur íslenska ríkið greitt um 25 milljarða króna til Sóltúns fyrir þjónustu þess og á hjúkrunarheimilinu hafa mörg hundruð eldri borgararar búið á þessum tíma. Allar þessar upplýsingar sýna hversu öflugt fyrirtæki Öldungur og Sóltún hjúkrunarheimili eru. Hvernig stendur þá á því að ekki liggur fyrir hversu mikið núverandi eigendur Sóltúns greiddu fyrir þetta stönduga fyrirtæki? Þeir hafa ekki viljað gefa þetta upp og verðið kemur ekki fram í ársreikningum þeirra félaga sem stóðu að viðskiptunum. Í viðtali við Heimildina fyrir tveimur árum sagði Þórir Kjartansson orðrétt um kaupin á Sóltúni. „Um hefðbundin viðskipti var að ræða þar sem eigandi fyrirtækis leitaði að kaupanda. Við ákváðum að fjárfesta í þessum rekstri í ljósi þess góða árangurs sem stjórnendur og starfsfólk Sóltúns hafði náð en heimilið var þá þegar orðið eftirsóttasta hjúkrunarheimili landsins. Eðli viðskiptanna var bara eins og slík viðskipti fara fram að hlutabréf í félaginu skiptu um hendur og það varð opinbert beint í kjölfarið.“ Forstjóri hjúkrunarheimilisins Sóltúns, Halla Thoroddsen, sagði í sömu grein að kaupverð fyrirtækisins væri trúnaðarmál. Kaupverðið alfarið greitt með yfirtöku skulda Einn möguleiki er sá að kaupverðið hafi alfarið verið greitt með yfirtöku skulda Öldungs hf. Núverandi eigendur Öldungs og Sóltúns hafa hins vegar ekki sagt þetta berum orðum í svörum til fjölmiðla í gegnum árin. Í árslok 2008 var eigið fé Öldungs – eignir mínus skuldir – neikvætt um rúmlega 168 milljónir króna. Félagið átti rúmlega 1700 milljóna króna eignir en skuldaði tæpar 1900 milljónir. Hagnaður upp á 34 milljónir var samt á rekstrinum á þessu hrunári. Þessi tilgáta um skuldsettu yfirtökuna byggir á því að staða Öldungs hafi á þessum tíma verið svo slæm að Jóhann Óli Guðmundsson og fyrirtæki hans, Frumafl, hafi orðið að gefa Sóltún frá sér án endurgjalds. Í ársreikningi fyrirtækis þeirra Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar sem eignaðist Öldung árið 2009 kemur fram að fjárfesting þeirra í Öldungi árið 2009 hafi numið 3,6 milljónum króna. Þar kemur líka fram að nafnverðið á hlutabréfunum í Öldungi hafi numið 3,6 milljónum króna. Í þessum ársreikningi kemur líka fram að virðið á eignarhlutanum í Öldungi hafi verið endurmetið upp á 312 milljónir króna. Segist hafa fengið meint kauptilboð Í kærunni frá Jóhanni Óla vegna þessara viðskipta kemur fram að hann segist hafa fengið kauptilboð í Öldung og Sóltún upp á tvo til tvo og hálfan milljarð króna á árunum 2006 til 2007. Þessi tilboð voru óformleg og komu frá tryggingafélögunum Sjóvá og VÍS. Lögmaður Jóhanns Óla segir í kærunni að honum hafi þótt þessi tilboð í Öldung og Sóltún vera of lág og að þess vegna hafi hann ekki viljað taka þessum tilboðum í móðurfélag Sóltúns. Kæruna má því skilja sem svo að Jóhann Óli sé að segja að hann hefði aldrei samþykkt að láta Öldung og Sóltún af hendi án endurgjalds og eingöngu með yfirtöku kaupenda fyrirtækisins á skuldum. Þess vegna vill hann meina að skýringin á málinu liggi í því að hann hafi átt að fá meinta greiðslu upp á tvo milljarða króna fyrir Sóltún auk þess sem skuldir félagsins hafi átt að vera yfirteknar. Jóhann Óli vill meina að Arnar og Þórir hafi aldrei efnt þennan samning. Lögreglurannsóknin á þessum meintu viðskiptum með Sóltún stendur nú yfir og liggur á þessari stundu ekki ljóst fyrir hvað kemur út úr henni. Skýrslutökur hafa farið fram og Alda Hrönn Jóhannsdóttir, staðgengill lögreglustjórans á Suðurnesjum, hefur sagt að rannsóknin standi yfir. Hugsanlegt er að ein af niðurstöðum þessarar rannsóknar verði að endanlega verði upplýst hvernig viðskiptin með hjúkrunarheimilið Sóltún gengu fyrir sig og hver það er sem er að segja satt. Átti Jóhann Óli Guðmundsson að fá greidda tvo milljarða króna fyrir Sóltún eða var kaupverðið eingöngu greitt með yfirtöku skulda, líkt og ýmislegt bendir til að núverandi eigendur Sóltúns telji að sé rétt. Hvað sem líður ólíkum sögum um þetta þá liggur fyrir að núverandi eigendur Sóltúns hafa hagnast ævintýralega á þessum viðskiptum með hjúkrunarheimilið og þeir halda áfram að reka heimilið með góðum árangri og traustu tekjustreymi frá ríkinu jafnvel þó að þeir hafi selt fasteignina frá sér. Fyrri þátt Þetta helst um Sóltúnsmálið má hlusta á hér:

Go to News Site