Collector
Fjörutíu ár frá vonbrigðunum í Björgvin | Collector
Fjörutíu ár frá vonbrigðunum í Björgvin
Fréttastofa RÚV

Fjörutíu ár frá vonbrigðunum í Björgvin

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld, söng Pálmi Gunnarsson í Grieg-höllinni í Björgvin þegar Ísland tók í fyrsta sinn þátt í Eurovision. Í dag eru liðin 40 ár síðan. Pálmi, Helga Möller og Eiríkur Hauksson mynduðu söngflokkinn Icy sem tók þátt fyrir Íslands hönd með laginu Gleðibankanum eftir Magnús Eiríksson. Mikill áhugi var á keppninni og í fréttum Ríkisútvarpsins á degi keppninnar var sýnt frá því að götur Reykjavíkur hefðu verið nánast tómar á meðan hún fór fram. Væntingar landsmanna voru miklar í aðdraganda keppninnar. Dagblaðið Vísir hélt því fram á degi hennar að sigurlíkur Gleðibankans væru „verulegar“. Lagið endaði hins vegar í sextánda sæti af tuttugu og hin belgíska Sandra Kim bar sigur úr býtum. Vonbrigði Íslendinga voru greinileg á síðum íslenskra dagblaða. „Ég er ekki frá því að Íslendingar hafi verið fullsigurreifir fyrir keppnina og vonbrigðin því sárari,“ sagði viðmælandi Morgunblaðsins sem þótti lagið eiga betra skilið. Björn Björnsson, sem kom að skipulagningu keppninnar, sagði við DV að Evrópa væri ekki tilbúin fyrir Ísland.

Go to News Site