Collector
Óhugnanlegt atvik í Sindratorfærunni á Hellu | Collector
Óhugnanlegt atvik í Sindratorfærunni á Hellu
Fréttastofa RÚV

Óhugnanlegt atvik í Sindratorfærunni á Hellu

Keppni á Íslandsmótinu í torfæruakstri hófst í gær. Þá var hin árlega og bráðfjöruga Sindatorfæra á dagskránni á Hellu. Það er jafnan mikið at þegar keppt er í torfæru og í gær var engin undantekning þar á þegar mörg hundruð hestöfl hittu fyrir sandöldurnar á Hellu. Í lokagreininni sýndi það sig hversu háskalegar akstursíþróttir geta verið og hvers vegna jafnmiklar kröfur eru gerðar til öryggisbúnaðar og raun ber vitni. Gunnar Guðjónsson missti bremsur síns bíls við ána og endaði á hvolfi ofan í hyl. Eftir taugatrekkjandi augnablik náði hann að losa beltin með neyðarlosuninni og komst út úr bílnum og fór sannarlega betur en á horfðist í fyrstu. 20 sekúndur liðu frá því Gunnar lenti ofan í ánni þangað til hann sést koma upp úr vatninu eftir að hafa losað sig úr bílnum. Bein útsending á RÚV 2 var rofin meðan Gunnar var ofan í vatninu en opnað var aftur á útsendinguna þegar Gunnar gekk upp úr ánni og ljóst var að hann var heill á húfi. Hér má sjá umrætt atvik úr sjónvarpsútsendingunni. Betur fór en á horfðist í Sindratorfærunni á Hellu í gær. Einn keppendanna, Gunnar Guðjónsson, hvolfdi bíl sínum ofan í hyl og var á kafi í vatni í 20 sekúndur en öryggisbúnaður kom í veg fyrir að ekki fór verr. „Þarna fékk ég fyrir hjartað“ „Hann er kominn út úr bílnum,“ heyrist þulur torfærunnar segja í hljóðkerfi á keppnisstaðnum. Bragi Þórðarson og Sævar Jónsson lýstu torfærunni í beinni útsendingu á RÚV 2. „Ja hérna hér. Þarna fékk ég fyrir hjartað. Þarna leist mér ekki á blikuna. -Nei, ég get alveg verið sammála þér með það. Þetta er bara martröð. Hann veit ekki hvernig bíllinn snýr. Hann er bara ofan í ískaldri á með adrenanlínið í botni. Hvað heldur hann andanum lengi niðri? -Þetta er það sem maður er búinn að vera skíthræddur við í áratugi,“ er meðal þess sem fram kom í lýsingu þeirra Braga og Sævars frá atvikinu. Finnur sigurvegari Það reynir á býsna marga þætti aksturshæfileika í einni svona keppni og um leið er býsna margt sem getur farið úrskeiðis þegar brunað er upp nánast lóðrétta veggina. Finnur Aðalbjörnsson náði snemma forystunni í flokki sér útbúinna bíla. Hann sýndi öryggi í flestum brautum og náði góðu forskoti í fyrsti tveimur brautunum. Finnur var enn efstur þegar kom að lokaþrautinni sem var hraðaþraut yfir á og allt nema bilun hjá honum myndi koma í veg fyrir sigur í keppninni. Finnur var í ham og sýndi sitt besta í lokin. Ingvar Jóhannesson varð annar og Geir Evert Grímsson þriðji. Fjallað var um Sindrafæruna í íþróttafréttum RÚV í gærkvöld. Betur fór en á horfðist í Sindratorfærunni á Hellu í gær. Einn keppendanna, Gunnar Guðjónsson, hvolfdi bíl sínum ofan í hyl og var á kafi í vatni í 20 sekúndur en öryggisbúnaður kom í veg fyrir að ekki fór verr. Flugbjörgunarsveitin á Hellu heldur Sindratorfæruna sem er fyrsta umferð Íslandsmótsins. Keppt hefur verið á svæðinu síðan 1973 og hefur keppnin ætíð verið ein sú vinsælasta á mótinu enda býður svæðið upp á allt, brattar brekkur, akstur á vatni og í mýri. Hér má sjá alla útsendinguna frá Sindratorfærunni á RÚV 2 í gær. Betur fór en á horfðist í Sindratorfærunni á Hellu í gær. Einn keppendanna, Gunnar Guðjónsson, hvolfdi bíl sínum ofan í hyl og var á kafi í vatni í 20 sekúndur en öryggisbúnaður kom í veg fyrir að ekki fór verr.

Go to News Site