Fréttastofa RÚV
Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir fór fyrir liði Bayern München þegar liðið sótti Barcelona heima í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í dag. 1-1 stóð hjá liðunum eftir fyrri leikinn fyrir viku. Barcelona hefur leikið til úrslita í Meistaradeildinni undanfarin fimm ár og unnið þrisvar. Það var því við ramman reip að draga hjá Glódísi Perlu og félögum, sem hafa aldrei komist í úrslit og raunar aldrei í undanúrslit áður. Barcelona komst yfir á 13. mínútu þegar Salma Paralluelo skoraði en fjórum mínútum síðar jafnaði Linda Dallmann metin fyrir Bæjara. Heimakonur voru ekki lengi að ná forystunni aftur og Alexia Putellas skoraði á 22. mínútu og 2-1 stóð í leikhléi. Á fyrsta korteri seinni hálfleiks virtist Barcelona svo hafa gengið endanlega frá leiknum. Fyrst skoraði Ewa Pajor á 54. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði Alexia aftur og staðan 4-1 og 5-2 samanlagt. En lokamínútur leiksins voru dramatískar. Pernille Harder náði að laga stöðuna fyrir Bayern á 71. mínútu í 4-2 og hún skoraði svo aftur mark á 90. mínútu sem fékk þó ekki að standa eftir myndbandsskoðun dómara. Nær komust gestirnir ekki. Lokatölur urðu 4-2 fyrir Barcelona sem vinnur einvígið 5-3 samanlagt og leikur því enn eina ferðina til úrslita í meistaradeildinni. Barcelona mætir Lyon í úrslitaleiknum Þar verður mótherjinn franska stórveldið Lyon sem sló ríkjandi Evrópumeistara Arsenal naumlega úr leik í undanúrslitum í gær, 3-2 samanlagt. Lyon er sigursælasta lið keppninnar með átta titla og leikur nú til úrslita í tólfta sinn. Úrslitaleikurinn fer fram á Ullevaal leikvanginum í Ósló í Noregi 23. maí.
Go to News Site