Fréttastofa RÚV
Fjórir leikir eru á dagskrá Bestu deildar karla í dag og í kvöld og er tveimur þeirra lokið. Stjarnan komst yfir snemma gegn ÍA í Garðabænum. Benedikt Warén skoraði með laglegu skoti eftir snarpa sókn strax á 10. mínútu leiksins og var það eina mark fyrri hálfleiks. Skagamenn jöfnuðu svo metin eftir tæplega korters leik í síðari hálfleik. Markús Páll Ellertsson skoraði fyrir ÍA. Þegar um þrjár mínútur voru eftir slapp Viktor Jónsson svo í gegnum vörn Stjörnunnar. Hann lék á Árna Snæ Ólafsson í markinu og skoraði sigurmark ÍA. Þetta var fyrsti sigur ÍA í deildinni og þriðja tap Stjörnunnar í röð eftir að Garðabæjarliðið hafði unnið fyrstu tvo leiki sína. ÍBV skoraði eftir 14 sekúndur ÍBV tók á móti Breiðabliki í Vestmannaeyjum og það tók ÍBV aðeins 14 sekúndur að komast yfir. Eyjamenn settu stífa pressu á mark Blika í byrjun og Liam Daði Jeffs skoraði fyrsta markið. Kristófer Ingi Kristinsson jafnaði svo metin fyrir Breiðablik eftir rúmlega 20 mínútna leik með öruggum skalla og 1-1 stóð í leikhléi. Blikar náðu svo að snúa stöðunni sér í vil eftir tæpt korter í seinni hálfleik. Viktor Karl Einarsson skoraði eftir skalla frá Kristófer Inga. Þetta reyndist jafnframt sigurmark leiksins og Breiðablik fór upp fyrir Víking í annað sæti en Víkingar eru að spila núna við Keflavík. ÍBV er á botni deildarinnar með 1 stig. Leikir dagsins Stjarnan - ÍA 1-2 ÍBV - Breiðablik 1-2 FH - Fram kl. 18:00 Keflavík - Víkingur kl. 18:00
Go to News Site