Collector
Klerkastjórnin stendur með pálmann í höndunum | Collector
Klerkastjórnin stendur með pálmann í höndunum
Fréttastofa RÚV

Klerkastjórnin stendur með pálmann í höndunum

Vopnahlé er í gildi á milli Bandaríkjanna og Írans en útlit er fyrir að frekari átök brjótist út að mati Magnúsar Þorkels Bernharðssonar, prófessors í nútímasögu Mið-Austurlanda. „Stríðið er að stigmagnast. Þá verður þetta alvarlegra eftir því sem það magnast ef það eru ekki skýrar útgönguleiðir. Núna eru engar augljósar útgönguleiðir hjá Bandaríkjunum,“ segir hann. Samningar gætu verið stórsigur fyrir Írana Ýmislegt er undir í samningaviðræðum ríkjanna tveggja en ekki er auðséð hvernig þau gætu mæst. Magnús telur að helst væri hægt að ná saman um kjarnorkuáætlanir og afléttingu viðskiptabanns á Írana. Slíkt væri stórsigur fyrir Íran en þvert á markmið Bandaríkjanna. Engar skýrar útgönguleiðir eru fyrir Bandaríkjamenn úr stríðinu í Mið-Austurlöndum að mati Magnúsar Þorkels Bernharðssonar prófessors. Hann segir alveg nýja stöðu komna upp í Persaflóa. Íran býr að því að geta haft lamandi áhrif á hagkerfi heimsins með aðgerðum í Hormússundi. Að mörgu leyti standi klerkastjórnin með pálmann í höndunum. „Ef þetta heldur áfram og það verður eitthvað samið þá styrkir það stöðu klerkastjórnarinnar í Íran á kostnað íbúanna kannski. Þetta mun tryggja að þeir munu vera áframhaldandi stjórn í Íran.“ Alvarleg staða í Líbanon Í Líbanon er einnig uppi alvarleg staða sem hefur fallið nokkuð í skuggann af átökum í Persaflóa. „Það voru vissulega jákvæð teikn að ríkisstjórn Ísraels og Líbanon hittust í fyrsta skipti í 40 ár,“ segir Magnús. Hins vegar séu Hezbollah-samtökin ekki með í þeim samræðum. „Það er mjög slæmt.“ Ísraelar hafa verið að færa út kvíarnar í landinu með öryggissvæðum sem Magnús segir uppskrift að endalausu stríði og hernámi. Hann segir skelfilega stöðu í Líbanon þar sem milljónir séu á vergangi. „Maður veit ekki alveg hvar þetta mun enda, að vera að færa landamærin alltaf fjær og fjær frá því sem þau voru upphaflega.“ Gjörbreyttur Persaflói Kaflaskil hafa, að mati Magnúsar Þorkels, átt sér stað á svæðinu. Miklar breytingar hafi átt sér stað í öllum ríkjum í Persaflóa. „[Það er] bara gjörsamlega ný staða komin upp í Persaflóanum þar sem valdajafnvægi er að breytast. Þær stoðir sem voru til og hafa haldið ákveðnu kerfi uppi – það er farið að hrikta í þessum stoðun. Þess vegna höfum við svolítið áhyggjur af því hvaða langtímaáhrif þessar breytingar munu hafa.“

Go to News Site