Collector
Hilmir Freyr og Hannes Hlífar með fullt hús eftir þrjár umferðir | Collector
Hilmir Freyr og Hannes Hlífar með fullt hús eftir þrjár umferðir
Fréttastofa RÚV

Hilmir Freyr og Hannes Hlífar með fullt hús eftir þrjár umferðir

Þriðja umferð Íslandsmótsins í skák var tefld í Miðgarði í Garðabæ í dag. Þeir Hilmir Freyr Heimisson og Hannes Hlífar Stefánsson hafa báðir unnið allar skákir sínar til þessa. Hilmir hafði betur í mikilli baráttuskák gegn Birni Þorfinnssyni en sigur Hannesar var öruggari, gegn Lenku Ptácníková. Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson hikstaði aðeins og hefur nú gert tvö jafntefli í röð. Vignir virtist ætla að vinna sína skák en Björn Hólm Birkisson náði að verjast ótrúlega með nánast engan tíma á klukkunni og ræna hálfum punkti af Íslandsmeistaranum. Hilmir og Hannes hafa því þrjá vinninga af þremur mögulegum. Guðmundur Kjartansson er aðeins hálfum vinningi á eftir og svo kemur Vignir Vatnar með tvo vinninga í fjórða sæti. Í fjórðu umferð mætast Hannes og Hilmir í alvöru toppslag á morgun, mánudag. Umferðin hefst 15:00 í Miðgarði. Skáksamband Íslands býður upp á beinar útsendingar með 15 mínútna seinkun og samantektir í lok dags. Allar upplýsingar og útsendingar eru aðgengilegar á skak.is , en einnig má fylgjast með mótinu og stöðunni á Chess-Results .

Go to News Site