Collector
Stjórnendurnir kaupa CCP á um 15 milljarða | Collector
Stjórnendurnir kaupa CCP á um 15 milljarða
Fréttastofa RÚV

Stjórnendurnir kaupa CCP á um 15 milljarða

Suður-kóreska fyrirtækið Pearl Abyss, eigandi íslenska tölvuleikjafyrirtækisins CCP Games, ætlar að selja fyrirtækið aftur til núverandi stjórnenda þess. Fyrirtækið greindi frá sölunni í lok aprílmánaðar en stjórnendur Sé Sé Pjé munu greiða hundrað og tuttugu milljónir bandaríkjadala fyrir, eða um fimmtán milljarða íslenskra króna. Talsmaður Pearl Abyss segir samstarf með stjórnendum CCP hafa verið með ágætum, en að báðir aðilar hafi í sameiningu ákveðið að þessi leið væri fyrirtækjunum tveimur til hagsbóta. Þá séu fyrirtækin ekki að loka á möguleika á samstarfi í framtíðinni þrátt fyrir söluna. Mjög metnaðarfullir tölvuleikir Pearl Abyss festi kaup á öllu hlutafé í CCP Games árið 2018. Á vef Viðskiptablaðsins segir að það hafi verið ein stærsta fyrirtækjasala í sögu íslensks viðskiptalífs, en kaupverðið nam um 43 milljörðum króna á núverandi verðlagi. CCP er einna helst þekkt fyrir gerð netspilunartölvuleiksins Eve Online sem var gefinn út árið 2003 og nýtur enn vinsælda í dag. Fyrr á árinu gaf fyrirtækið út metnaðarfulla uppfærslu á leiknum sem ber nafnið Catalyst. Pearl Abyss gaf nýverið út tölvuleikinn Crimson Desert, sem þykir gríðarlega metnaðarfullur tölvuleikur. Talið er að framleiðsla leiksins hafi kostað um 133 milljónir bandaríkjadala. Fyrirtækið hefur kappkostað við að uppfæra tölvuleikinn síðan hann var gefinn út 19. mars, en að margra spilara og gagnrýnenda mati var leikurinn raunar ekki tilbúinn.

Go to News Site