Collector
GameStop gerir 55,5 milljarða dala yfirtökutilboð í eBay | Collector
GameStop gerir 55,5 milljarða dala yfirtökutilboð í eBay
Fréttastofa RÚV

GameStop gerir 55,5 milljarða dala yfirtökutilboð í eBay

GameStop -leikjasölukeðjan hefur gert 55,5 milljarða bandaríkjadala yfirtökutilboð í netverslunarrisann eBay. GameStop hefur gert yfirtökutilboð í eBay.EPA / JOHN G. MABANGLO Tilboðið hljóðar upp á 125 dali á hlut, sem er 20 dölum meira en þegar hlutabréfamarkaðnum í New York var lokað á föstudag. BBC fjallar um viðskiptin. Ryan Cohen, forstjóri GameStop, sagði í bréfi til eBay að ætlunin væri að minnka rekstrarkostnað um tvo milljarða dala innan árs frá því komist verður að samkomulagi um viðskiptin. Cohen yrði forstjóri sameinaðs fyrirtækis sem ætlunin er að verði verðugur keppinautur Amazon-verslunarrisans.

Go to News Site