Collector
Vegglistaverkið úr Tónabíói komið í leitirnar | Collector
Vegglistaverkið úr Tónabíói komið í leitirnar
Fréttastofa RÚV

Vegglistaverkið úr Tónabíói komið í leitirnar

Leitin að glötuðu vegglistaverki úr Tónabíó, sem hvarf undir sprunguviðgerðir fyrir fjölda ára, vakti töluverð viðbrögð í Facebook-hópnum Gamlar ljósmyndir . Sigurður Snorrason, eigandi Reykjavík Bruggfélags, birti ljósmynd af vegglistaverki í hópnum fyrir helgi. Á myndinni mátti þó aðeins sjá um helming verksins, þar sem Pepsi Max-sjálfsali hylur restina, og óskaði Sigurður því eftir ljósmynd af öllu vegglistaverkinu. Vegglistaverkið er nú fundið. Þó nokkrir tjáðu sig í athugasemdum við færslu Sigurðar. Sumir velta fyrir sér hvenær vegglistaverkið hafi verið málað á vegg Tónabíós og af hverjum. Þá er líka hneykslast yfir því að málað hafi verið yfir listaverkið. Það var síðan hún Sigrún Þóra Björnsdóttir, sem starfaði áður í Tónabíó, sem birti mynd af vegglistaverkinu í heild við færslu Sigurðar. Myndina fékk hún frá gömlum samstarfsfélaga í bíóinu, henni Hörpu Karlsdóttur. Grund liggur undir grun Sigurður telur líklegt að Lothar Grund sé að baki vegglistaverkinu. Grund var þýskur málari sem starfaði hérlendis um árabil. „Hann var á landinu á þessum tíma og er sagður hafa málað ýmsar veggmyndir, til dæmis á Hótel Sögu,“ segir Sigurður. „Og hann á að hafa gert leikmyndir og annað slíkt í Þjóðleikhúsinu.“ Þá segir bruggarinn myndir af öðrum verkum Grunds svipa til myndarinnar úr Tónabíó. „Ég bar þetta undir einn vin minn sem er listmálari og hann sagði: Já, þetta var eiginlega það fyrsta nafn sem mér datt í hug. Þannig að það eru sterkar vísbendingar til þess að þetta gæti verið hann.“ Harpa Karlsdóttir, sem átti myndina af vegglistaverkinu, segir Lothar Grund hafa málað verkið. Ætla að vinna náið með listamanni að endurgerð Sigurður segir þess virði að athuga hvort Tónlistarfélag Reykjavíkur, sem var upphaflega í húsinu, eigi gögn sem geti staðfest að Grund sé að baki myndinni. Líklegt er að það hafi verið málað fyrir opnun hússins árið 1962. Nú eruð þið komin með ljósmynd af frummyndinni. Hvað stendur til að gera við hana? „Mig langar að setja hana aftur á þennan vegg, í einhverju formi. Það hafa alveg komið upp hugmyndir um að nota þessa mynd sem grunn í aðra mynd.“ Það verði skoðað að uppfæra hana, eða draga innblástur af myndinni við gerð nýrrar. „Þetta er eitthvað sem mig langar að hafa samband við og samvinnu við einhvern listamann eða listafólk um og sjá hvaða hugmyndir þau geta komið með. Hvernig hægt sé að útfæra þessa mynd á einhvern nýjan, skemmtilegan hátt, aðeins uppfæra þetta en samt halda í grunnmyndina.“ Veistu hvaða listamaður tekur það að sér? „Nei, það er ekki komið neitt samkomulag um það en ég er búinn að nefna þetta við einn listamann sem hefur áhuga á. Sjáum til hvað gerist, þetta bara er að gerast. Við þurfum að taka okkur tíma í þetta og hafa þetta flott og vandað.“

Go to News Site