Collector
Fólk gerist mennsk tilraunadýr við notkun peptíða | Collector
Fólk gerist mennsk tilraunadýr við notkun peptíða
Fréttastofa RÚV

Fólk gerist mennsk tilraunadýr við notkun peptíða

„Það eru hættur sem fylgja þessu,“ segir Ragnhildur Þórðardóttir, oftast þekkt sem Ragga nagli, sálfræðingur með áherslu á heilsuvenjur í Morgunútvarpinu á Rás 2. Notkun á svokölluðum peptíðum, sem seld eru á gráum markaði og fólk sprautar í sig, virðist vera að aukast hér á landi. Efnin eru seld á samfélagsmiðlum og gefa fögur fyrirheit um til dæmis betri húð, minni matarlyst og hraðari endurheimt eftir æfingar, án þess að slíkt hafi verið staðfest með rannsóknum á fólki. Ragga nagli segir fólk gerast mennsk tilraunadýr við notkun peptíða. Hlustaðu á viðtalið við Röggu í spilaranum hér fyrir ofan en hún var meðal annars beðin um að útskýra peptíð fyrir stjórnendum Morgunútvarpsins eins og þau væru sjö ára.

Go to News Site