Collector
Algjör Perla: Fyrst og fremst sprenghlægileg | Collector
Algjör Perla: Fyrst og fremst sprenghlægileg
Fréttastofa RÚV

Algjör Perla: Fyrst og fremst sprenghlægileg

Jónína Leósdóttir, höfundur bókarinnar Algjör Perla, lýsir henni sem kátínukrimma. Ingibjörg Iða Auðunardóttir, gagnrýnandi í Kiljunni, tekur undir þau orð. „Hún er það svo sannarlega.“ Perla er kona á áttræðisaldri sem fær slag og þegar hún rankar við sér á Landspítalanum í Reykjavík hugsar hún með sér að hún megi ekki deyja því það þurfi að fela líkið betur. Líkið er staðsett á heimili hennar fyrir norðan og getur ómögulega verið áfram þar sem það er. „Á meðan hún er að sækja endurhæfingu þá rennur upp fyrir henni alvara málsins og hennar lömunar. Hvernig á hún að takast á við þetta? Það er algjör þraut að sitja uppi með lík heima hjá sér og vera lamaður á vinstri helmingi líkamans.“ Smátt og smátt fær lesandinn að vita hvað gerðist en fyrst og fremst sé bókin sprenghlægileg, að mati Ingibjargar. „Ef ég má segja alveg eins og er. Ég skellti upp úr oftar en einu sinni og oftar en tvisvar við lestur þessarar bókar.“ „Perla er þungamiðjan. Hún er það sem drífur þessa sögu áfram. Mér var eiginlega alveg sama af hverju þetta lík var heima hjá henni – en sá hluti er vel afgreiddur að langflestu leyti,“ útskýrir hún. „En þessi kímni er bara meiri háttar. Ég var mjög ánægð með þessa bók.“ Svo skemmtileg að hægt er að fyrirgefa ótrúverðugan endi Kolbrún Bergþórsdóttir tekur undir með kollega sínum og segir stíl bókarinnar hafa verið afskaplega skemmtilegan. „Þetta er léttleikandi og kómískt og svo er það Perla. Þessi persónusköpun er gríðarlega vel heppnuð.“ „Perla er 75 ára og hún er æðisleg. Hún er svo sjálfstæð og skemmtilega þrjósk og þver. Svo lendir hún í því sem gerist þegar fólk er komið á vissan aldur; börnin reyna að stjórna henni og spítalinn er að reyna að stjórna henni en hún vill stjórna sér sjálf.“ Kolbrún segir þó veikleika bókarinnar vera í sambandi við sjálft líkið. „Þessi saga er best þegar það er eiginlega ekkert að gerast.“ Henni þótti viðbrögð persóna við skýringum á líkinu ekki nógu trúverðug. „Og Jónína gerir sér grein fyrir því og útskýrir fyrir manni. Jónína er klár og veit að lesandinn kaupir þetta kannski ekki,“ segir Kolbrún því gefnar eru skýringar á því að þó svo að eitthvað kunni að virðast ótrúverðugt þá hafi þetta verið einu mögulegu viðbrögðin í þessari stöðu. Ingibjörg er sammála þessu og segir lokahnykkinn ekki hafa verið alveg nógu trúverðugan. Þeim þyki bókin þó báðum svo skemmtileg að þær fyrirgefi það. Spennuþátturinn sjálfur hafi verið ágætur en til þess hafi leikurinn ekki verið gerður. „Þetta er ekki beint venjulegur krimmi. Þetta er bara stórkostlega fyndið,“ segir Ingibjörg. „Þetta er ótrúlega skemmtileg bók og ég fyrirgef henni það að hún sé ekki alveg fullkomin undir lokin því ég skemmti mér svo vel við lesturinn.“ „Þetta er mjög notalegt og skemmtilegt,“ bætir Kolbrún við. „Ég fyrirgef henni það að hún sé ekki alveg fullkomin undir lokin því ég skemmti mér svo vel við lesturinn,“ segir Ingibjörg Iða, gagnrýnandi Kiljunnar, um Algjöra Perlu eftir Jónínu Leósdóttur. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um Algjöra Perlu eftir Jónínu Leósdóttur. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Go to News Site